Fulltrúaráð
Kosningar 2026

Kynning á frambjóðendum til setu í fulltrúaráði 2026-2028

Frambjóðendur (í stafrófsröð)
Smellið fyrir stærri mynd

Andri
Ólafsson

Sem höfundur hef ég mest látið að mér kveða í hljómsveitinni Moses Hightower, þar sem ég spila á bassa og syng auk þess sem við gefum sjálfir út okkar verk. Ég hef svo verið leiguliði við lifandi flutning og upptökur með fjölmörgum af helstu listamönnum hérlendis og lagt til bassaleik, söng og útsetningar. 

Ég hef samið, stjórnað og flutt leikhústónlist í báðum stóru leikhúsunum, aðstoðað kvikmyndatónskáld, gert tónlist við auglýsingar, auk þess að kenna hljóðfæraleik, samspil og útsetningar.

Ég hef verið varamaður í stjórn Félags tónskálda og textahöfunda (FTT) frá árinu 2021 og hef þar fengið góða innsýn í hagsmunamál höfunda. Í Fulltrúaráði STEF vil ég leggja mitt af mörkum til að standa vörð um réttindi tón- og textahöfunda í ólgusjó streymisveitna og gervigreindar.

Aðildarfélag: FTT

Anna Gréta
Sigurðardóttir

Píanóleikarinn, söngkonan og tónskáldið Anna Gréta hefur verið búsett í Svíþjóð síðustu ár, en síðan hún var valin Bjartasta Vonin á íslensku tónlistarverðlaunum 2015 hefur hún raðað að sér verðlaunum og tilefningum bæði hérlendis og þar. Eftir tvær plötur hjá einni virtustu jazzútgáfunni í dag ACT Music; Nightjar in the Northern Sky (2021) og Star of Spring (2024) er hún komin í fremstu röð jazztónlistarfólks á Norðurlöndum. Báðar plötur hlutu lof gagnrýnenda víðsvegar um heim og hefur tónlist hennar verið streymt yfir 3 milljón sinnum á streymisveitum. Í Svíþjóð hefur Anna Gréta hlotið hin ýmsu verðlaun fyrir leik sinn, m.a. Monica Zetterlund verðlaunin, Ystad Jazz Piano Award ásamt því að hafa verið einn eftirsóttasti jazzpíanóleikarinn í Stokkhólmi.

Af hverju býð ég mig fram? Ég er nýflutt heim eftir 11 í Svíþjóð þar sem ég sótti menntun og starfaði sem verktaki í bæði mínum verkefnum og annarra um árabil. Ég tel að ég hafi öðlast góðan skilning og sýn á margbreytilegu umhverfi tónlistarfólks í Svíþjóð sem er þekking sem ég tel að geti nýst vel í fulltrúaráði STEFs.

Aðildarfélag: FTT

Álfheiður Erla
Guðmundsdóttir

Álfheiður Erla Guðmundsdóttir hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2021 sem söngkona ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar og komst sama ár í 16 manna úrslit í BBC Cardiff Singer of the World söngkeppninni.

Á árunum 2021–2024 var hún fastráðin við Theater Basel í Sviss þar sem hún fór með fjölbreytt og krefjandi hlutverk óperubókmenntanna. Hún hefur einnig farið með burðarhlutverk í m.a. Staatsoper Berlin, Theater an der Wien og Theater Dortmund.

Árið 2022 annaðist Álfheiður listræna stjórn og söng á viðburðinum Apparition í Eldborg í Hörpu ásamt píanóleikaranum Kunal Lahiry en viðburðurinn var tilnefndur sem Tónlistarviðburður ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2023.

Árið 2023 kom út platan Poems hjá Deutsche Grammophon en það er frumraun Álfheiðar sem bæði söngkona og tónskáld en plötuna vann hún í samstarfi við tónskáldið Viktor Orra Árnason. Álfheiður var einnig meðframleiðandi heimildarmyndarinnar Poems: A Journey through Icelandic Poetry en tónlistin í kvikmyndinni var tilnefnd til Norrænu kvikmyndatónskáldaverðlaunanna.

Vorið 2026 kemur Álfheiður fram á tvennum tónleikum á Listahátíð í Reykjavík, í 8. sinfóníu Gústafs Mahlers með Sinfóníuhljómsveit Íslands og í Samhljómi kynslóða í Hallgrímskirkju þar sem hún syngur einsöng í Óttusöngvum eftir Jón Nordal.

Álfheiður Erla er fyrsti íslenski listamaðurinn sem valinn hefur verið til þátttöku í Rising Stars tónleikaferðalagi samtaka evrópskra tónleikahúsa og kemur fram á 17 tónleikum víðs vegar um Evrópu 2025/26.

Utan félaga

Árni Páll
Árnason

Ég hef verið virkur í að semja eigið efni síðan 2014 og gefið út helling af lögum og plötum.

Höfundaréttur er mér hjartans mál og ég tel mig vera góðan kost og rödd sem vantar inn í STEF.

Markmið mitt er að skila tekjum í vasa þeirra sem búa þær til.

Utan félaga

Barði
Jóhannsson

Barði Jóhannsson er tónskáld, tónlistarmaður og producer sem hefur starfað víða á sviði tónlistar. Hann hefur samið tónlist fyrir fjölmargar íslenskar og erlendar kvikmyndir, sjónvarpsþætti, heimildamyndir og auglýsingar. Verk hans hafa einnig hlotið tilnefningar og viðurkenningar á ýmsum hátíðum, ma. útflutningsverðlaun, Edduna o.s.frv.

Í gegnum feril sinn hefur Barði unnið með fjölda þekktra listamanna sem höfundur og producer. Þar á meðal eru Sia, Anthony Gonzalez (M83), Jean-Benoît Dunckel (Air), Tvíhöfði, Keren Ann og Kælan Mikla, auk fjölda annarra. Hann er í hljómsveitinni Bang Gang og annar helmingur dúettsins Lady & Bird.

Barði var einnig meðhöfundur að óperunni Red Waters, sem sett var upp í nokkrum leikhúsum og óperuhúsum í Frakklandi og tónlist Barða hefur verið flutt af sinfóníuhljómsveitum víða um Evrópu. 

Á ferli sínum hefur Barði gefið út fjölda tónlistarverka, aðallega með hljómsveit sinni Bang Gang og með Lady & Bird. Hann hefur jafnframt mikla reynslu af forleggjurum en var um langt skeið með samninga við tónlistarforleggjarana EMI Music Publishing og Universal Music Publishing Group.

Aðildarfélag: FTT

Bergrún
Snæbjörnsdóttir

Tónlist Bergrúnar Snæbjörnsdóttur hefur vakið sívaxandi athygli á undanförnum árum en á meðal tónlistarhópa sem hafa flutt verk hennar má nefna sveitir svo sem Fílharmóníusveitina í Osló, Ensemble Musikfabrik (DE) og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Bergrún nam tónsmíðar við Listaháskóla Íslands og síðar við Mills College í Kaliforníu þar sem hún naut leiðsagnar brautryðjenda á sviði framsækinnar tilraunatónlistar; má þar nefna Pauline Oliveros, Fred Frith og Zeena Parkins. Bergrún vinnur á spennandi mærum ólíkra listgreina, tónlist hennar oft samofin myndlist og innsetningum en kveikjur og áhrif eru gjarnan sótt í heimspeki og náttúrufyrirbæri. Í verkum hennar er hinn sjónræni þáttur iðulega virkjaður og hlutverk tónlistarflytjandans stundum opið og spunakennt þar sem Bergrún nýtir sér óhefðbundna nótnaskrift. Hún gaf nýlega út plötu í fullri lengd, “Skinweeper” hjá Smekkleysu SM, og gefur einnig á árinu út plöturnar “Intraloper” hjá Sawyer Records (US) og “Roföldur” hjá INA GRM (FR) ásamt tónskáldinu/klarinettuleikaranum John McCowen. Verkefni á árinu 2026 eru meðal annars verk fyrir Yarn/Wire (US) til flutnings á Moers Festival (DE) og Currents (US), verk í tónleikalengd fyrir viibra flautuseptett ásamt Margréti Bjarnadóttur danshöfundi á Listahátíð í Reykjavík, og verk fyrir Juliet Fraser og Hannah Weirich til flutnings á Ars Musica (BE).

Aðildarfélag: TÍ

Bergur
Þórisson

Bergur Þórisson hefur um árabil starfað sem upptökustjóri og tónlistarmaður. Undanfarin ár hefur hann starfað sem tónlistarstjóri Bjarkar meðal annars á Cornucopia tónleikaferðalaginu en einnig hljóðritað plöturnar Utopia og Fossora og hlotið Grammy tilnefningar fyrir báðar plöturnar. Hann hefur einnig starfað náið með ótal mörgum öðrum listamönnum við upptökur og tónsköpun og má þar nefna Ólaf Arnalds, Alice Sara Ott, Yo-Yo Ma, Laufey, Báru Gísladóttir, Dustin O’Halloran, Arca, Rosalia, Damien Rice, Jóhann Jóhannsson, Sigur Rós, Hans Zimmer, Hania Rani, Gabríel Ólafs, Magnús Jóhann, GusGus, Viibra og marga fleiri. Þá hefur hann einnig starfað sem upptökustjóri Reykjavík Recording Orchestra í Hörpu og hljóðritað þar tónlist fyrir kvikmyndir, sjónvarpsseríur og tölvuleiki.

Utan félaga

Birgir
Nielsen

Ég gef kost á mér í fulltrúaráð STEFs í kosningum þeim er fram fara í mars 2026. Ég hef verið skráður hjá STEF síðan 1992 og tel mjög mikilvægt að hafa fulltrúa á landsbyggðinni og mínu tilfelli frá Vestmannaeyjum þar sem ég bý. Ég starfa sem Aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Vestmannaeyja og slagverkskennari ásamt því að vera starfandi Tónlistarmaður hér á Íslandi og mun reynsla mín án efa nýtast vel í fulltrúaráðið.

Aðildarfélag: FTT

Birgir Örn
Tryggvason

Tel mig eiga fullt erindi í fulltrúaráð STEF og handviss um að ég geti komið að gagni, en ég get hins vegar ekki lofað því að ég verði alltaf til friðs.

Aðildarfélag: FTT

Bjarni Ómar
Haraldsson

Bjarni Ómar er lagahöfundur og flytjandi sem hefur gefið út, kynnt og framleitt eigin sólóplötur og tekið þátt í fjölmörgum útgáfu og tónlistarverkefnum í gegnum árin þar á meðal innt af hendi tónlistarkennslu og stjórnun tónlistar- og grunnskóla. Í dag starfar Bjarni í aðalstarfi hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga sem sérfræðingur á kjarasviði og varaformaður samninganefndar Sambandsins.

Bjarni er menntaður Tómstunda – og félagsmálafræðingur og grunnskólakennari. Hann býr yfir víðtækri reynslu af skapandi starfi, réttindamálum og samstarfi innan innan og utan menningargeirans og hefur mikinn áhuga á að efla stöðu tónlistarfólks sérstaklega tón- og textahöfunda.

Með framboði til Fulltrúaráðs STEF vil ég leggja mitt af mörkum til að tryggja sanngjarna og gagnsæja hagsmunagæslu fyrir höfunda og flytjendur. Ég er lausnamiðaður, ábyrgur og tilbúinn að vinna markvisst að því að styrkja stöðu STEF,  íslenskrar tónlistar, höfunda og tónlistarfólks til framtíðar.”

Aðildarfélag: FTT

Eðvarð
Egilsson

Kæru kollegar.

Ég heiti Eðvarð Egilsson og starfa sem tónskáld, útgefandi og framleiðandi. Ég hef samið tónlist fyrir kvikmyndir og sjónvarp, m.a. Smoke Sauna Sisterhood, sem hlaut verðlaun á European Film Awards og Sundance, auk íslenskra verka á borð við Quake, 112 Reykjavík og Líf Dafnar.

Samhliða því hef ég samið og gefið út eigin plötur, starfað í hljómsveit og unnið við upptökur og framleiðslu. Ég þekki því starfsemi STEF úr ólíkum áttum sem kvikmyndatónskáld, sjálfstæður útgefandi, flytjandi og höfundur.

Síðustu tvö ár hef ég setið í fulltrúarráði STEF og tekið þátt í starfi íslenskra sendinefnda á ráðstefnum og kvikmyndahátíðum erlendis, þar sem ég hef kynnt starf mitt og talað fyrir málefnum höfunda. Þar hef ég lagt áherslu á réttindi höfunda, sérstaklega ungra tónskálda, og málefni sem snerta kvikmyndir, sjónvarp, auglýsingar og framleiðslu.

Ég gef kost á mér til áframhaldandi setu af því mér finnst mikilvægt að rödd starfandi höfunda sé sterk, skýr og framsýn. Réttindamál skipta máli – fyrir okkur í dag og fyrir þá sem koma á eftir.

Með kærri kveðju,
Eðvarð Egilsson

Aðildarfélag: FTT

Elíza M.
Geirsdóttir Newman

Ég býð mig fram til fulltrúaráðs Stefs af því ég er í stuði til þess! Ég er tónlistarmaður og lagahöfundur með víðtæka reynslu af lagasmíðum, útgáfu og tónleikahaldi. Sem meðlimur hljómsveitarinnar Kolrössu krókríðandi/ Bellatrix og sem sóló listamaður hef ég starfað bæði hérlendis og erlendis, bæði sem flytjandi og höfundur. Ég hef samið og gefið út eigin tónlist auk þess að semja fyrir aðra listamenn og verkefni með góðum árangri. Í gegnum störf mín hef ég kynnst vel alþjóðlegu starfsumhverfi tónhöfunda, útgáfumálum og mikilvægi sterkrar réttindagæslu. Ég hef einnig setið í stjórn KÍTÓN og þar unnið að auknum réttindum og sýnileika kvenna og kvára, þá sérstaklega sem lagahöfunda. Með þessari reynslu, bæði af innlendum og erlendum vettvangi, tel ég mig geta lagt málefnalegt og uppbyggilegt framlag til fulltrúaráðs STEF og staðið vörð um hagsmuni tónhöfunda.

Beztustu kveðjur! Elíza 

Aðildarfélag: FTT

Gunnar Andreas
Kristinsson

Gunnar Andreas Kristinsson stundaði tónsmíðanám við Tónlistarskólann í Reykjavík á árunum 1997-2001 undir leiðsögn Kjartans Ólafssonar og Atla Heimis Sveinssonar. Eftir það lá leiðin í Konunglega tónlistarháskólann í Haag þar sem hann lauk meistaragráðu í tónsmíðum árið 2004. Að námi loknu starfaði Gunnar sjálfstætt sem tónskáld í Hollandi auk þess að sækja ýmis starfstengd námskeið. Eftir að hann flutti aftur til Íslands í árslok 2009 starfaði hann í nokkur ár sem stundakennari við LHÍ en hefur á síðustu árum haft tónsmíðar að aðalstarfi. Gunnar hefur skrifað verk af ýmsum toga, allt frá einsleiksverkum til hljómsveitarverka, sem flutt hafa verið af nafnkunnum tónlistarmönnum/-hópum á tónlistarhátíðum innanlands sem utan. Verk Gunnars hafa þrívegis verið tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna og fyrsta plata hans, Patterns, hlaut Kraumsverðlaunin 2013. Önnur plata Gunnars, Moonbow, kom út hjá bandarísku útgáfunni Sono Luminus árið 2021. Platan hlaut lof gagnrýnenda víða um heim og rataði m.a. á langlista fyrir Grammy-verðlaunin. Gunnar hefur verið virkur í félagsstörfum á undanförnum árum og má þar helst nefna sæti í fulltúaráði STEFs 2018 – 2022, sæti í stjórn Baklands Listaháskóla Íslands frá árinu 2022 og síðast en ekki síst sæti í stjórn Tónverkamiðstöðvarinnar frá árinu 2014 (stjórnarformaður frá 2018-2024).

Aðildarfélag: TÍ

Gunnar Ingi
Guðmundsson

Ég býð mig fram til fulltrúaráðs STEFs fyrir tímabilið 2026–2028 með það að markmiði að leggja mitt af mörkum til sterkara og framsæknara samfélags höfunda á Íslandi. Sem bassaleikari og lagahöfundur hef ég víðtæka reynslu af íslensku tónlistarlífi, bæði á sviði og bak við tjöldin, og þekki vel þær áskoranir og tækifæri sem höfundar standa frammi fyrir í síbreytilegu umhverfi tónlistariðnaðarins.

Ég lærði bassaleik í Tónlistarskóla FÍH og síðar lagasmíðar og kvikmyndatónsmíðar við Berklee College of Music í Boston. Sú menntun hefur veitt mér sterkan faglegan grunn og alþjóðlegt sjónarhorn á höfundarétt, útgáfu og samstarf yfir landamæri. Ég hef samið fjölda laga fyrir íslenska flytjendur og tekið þátt í lagasmíðavinnubúðum bæði hér heima og erlendis, þar sem samvinna, nýsköpun og fagmennska eru í forgrunni.

Ég hef mikin áhuga á réttindamálum höfunda, gagnsæi og því að efla fræðslu um höfundarétt og tekjumöguleika í stafrænum heimi. Í haust stefni ég á nám í music marketing, sem mun styrkja enn frekar skilning minn á markaðssetningu tónlistar og tekjuöflun í alþjóðlegu samhengi.

Ég vil beita þekkingu minni, reynslu og tengslaneti til að styðja við hagsmuni höfunda, stuðla að aukinni vitund og tryggja að rödd skapandi tónlistarfólks heyrist skýrt innan STEFs og utan.

Aðildarfélag: FTT

Gunnar Karel
Másson

Gunnar Karel Másson (f. 1984) er tónskáld með víðtæka reynslu úr íslensku og norrænu tónlistarlífi. Hann lauk B.A. gráðu í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands og M.Mus. gráðu og post graduate diplóma frá Konunglega tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn.

Gunnar hefur samið fyrir kammerhópa, sinfóníuhljómsveit, leikhús og útvarp og verk hans hafa verið flutt á Íslandi og erlendis. Hann hefur jafnframt starfað sem kennari við grunn- og tónlistarskóla og lagt áherslu á skapandi nálgun, samtímatónlist og fjölbreytta miðlun.

Hann hefur gegnt trúnaðar- og nefndarstörfum, m.a. verið formaður úthlutunarnefndar Tónskáldasjóðs starfslaunasjóðs listamanna og setið í dómnefndum á Norðurlöndum. Sú reynsla hefur veitt honum innsýn í réttindamál, styrkjaumhverfi og starfsumhverfi tónskálda og höfunda.

Utan félaga

Halldór
Smárason

Halldór Smárason starfar sem tónskáld og píanóleikari.

Hann hefur unnið með fjölda listamanna og hópa, þar á meðal Sinfóníuhljómsveit Íslands, Ensemble intercontemporain, Útvarpshljómsveitum Parísar og Stuttgart, Strokkvartettinum Sigga, Caput og Sæunni Þorsteinsdóttur. Verk hans hafa verið flutt á Íslandi og erlendis og árið 2020 kom út fyrsta hljómplata hans, STARA, undir merkjum Sono Luminus. Hann hefur þrívegis hlotið tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna.

Halldór lauk námi frá Listaháskóla Íslands og Manhattan School of Music sem Fulbright-styrkþegi.

Auk tónsmíða er hann virkur hljómborðsleikari og útsetjari og hefur leikið inn á fjölmargar hljóðritanir.

Halldór situr í stjórnum STEFs og Tónskáldafélags Íslands og gefur kost á sér til áframhaldandi starfa í þágu tónhöfunda.

Aðildarfélag: TÍ

Hallur
Ingólfsson

Hallur Ingólfsson hefur setið í stjórn STEF frá 2020 og hefur auk þess sinnt ýmsum trúnaðar og nefndarstörfum fyrir samtökin. Hann er afkastamikið tónskáld með mjög víðtæka reynslu í flestu sem viðkemur tónlist og er einn af þeim sem kemur með mál inn í STEF og leitar þar leiða til að bæta umhverfi höfunda. Má þar m.a. nefna samræmda skráningu verka í hinum ýmsu gagnagrunnum, stofnun stórverkasjóðs og úrræði fyrir þá sem finnst á höfundarrétti sínum brotið. Undanfarin ár hefur Hallur sérstaklega beitt sér í málefnum kvikmyndatónskálda sem er vaxandi grein með ýmis sóknarfæri. Hann situr fyrstur íslendinga í evrópunefnd sem fer með þeirra mál og hefur sótt fundi og ráðstefnur þar að lútandi. Hallur er einnig í stjórn FTT og situr í Tónlistarráði og hefur á þeim vettvangi beitt sér sérstaklega í þágu grasrótarinnar, minni tónleikastaða og aðgengi sem flestra að æfingahúsnæði.

Aðildarfélagi: FTT

Hildigunnur
Rúnarsdóttir

Hildigunnur Rúnarsdóttir er ein okkar virtustu tónskálda. Hún hefur samið yfir 200 verk, sérstaklega liggur mikið eftir hana af kórverkum og sönglögum en einnig hefur hún samið tónlist við fjölda heimildamynda og margt fleira. Verk hennar hljóma reglulega víða um heim. Hildigunnur hefur víða látið til sín taka í félagsmálum, sat í stjórn Tónskáldafélags Íslands um árabil, var stjórnarformaður Íslenskrar tónverkamiðstöðvar til margra ára og hefur setið í fulltrúaráði STEFs í meira en áratug. Hún vill gjarnan halda áfram að vinna að framgangi íslensks tónlistarfólks af öllum tegundum og býður því fram krafta sína til áframhaldandi setu í fulltrúaráðinu. 

Aðildarfélag: TÍ

Hinrik
Bjarnason

Menntun: Kennaraskóli Íslands, Leikskóli Lárusar Pálssonar, framhaldsnámskeið í barnaverndar – og æskulýðsstarfi í Danmörk og Svíþjóð, Fulbright styrkþegi (Juvenile Correctional Work) 1959, námskeið í gerð og upptöku kvikmyndaefnis og sjónvarpsþátta hjá Sveriges Radio.

Störf: Kennsla á skyldunámsstigi, framkvæmdastjóri Æskulýðsráðs Reykjavíkur 1972-1979.

Umsjónarmaður barnaefnis við upphaf sjónvarps 1966  (Stundin okkar m.m.), dagskrárstjóri í Sjónvarpi 1979-2000.

Höfundarverk: Handrit og gerð sjónvarpsþátta (s.s. Rannveig og Krummi), kvikmynda, u.þ.b.

140 söngtextar, frumsamdir og þýddir, fjölbreytt annað ritmálsefni í bundnu máli og óbundnu.

Aðildarfélag: FTT

Hrafnkell
Pálmarsson

Ég hef starfað sem tónlistarmaður frá árinu 1999, meðal annars með hljómsveitinni „Í svörtum fötum“ og hin seinni ár með sveitinni „Nýju fötin keisarans“. Samhliða hef ég sinnt ýmsum öðrum verkefnum, lagasmíðum og upptökustjórn fyrir mig og aðra.

Ég útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2008 með BA-gráðu í tónsmíðum og liggja eftir mig verk t.d. fyrir kammersveit, kór og strengjakvartett. Þó hefur popp- og rokktónlistin helst átt hugann og hef ég aðallega fengist við slíkar lagasmíðar í gegnum árin.

Árið 2010 útskrifaðist ég frá Háskólanum í Reykjavík með meistaragráðu í stjórnun, MBA og flutti í kjölfarið til Svíþjóðar. Í janúarbyrjun 2013 hóf ég síðan störf hjá STEFi og gegndi starfi innheimtu- og markaðsstjóra hjá samtökunum fram á mitt ár 2023. Síðan þá hef ég starfað við fasteignasölu samhliða tónlistinni.

Síðastliðin tvö ár hef ég setið í fulltrúaráði STEFs ásamt því að vera varamaður í stjórn og hef ég setið nokkra stjórnarfundi í forföllum. 

Ég tel að þekking mín á höfundaréttarmálum og þeirri starfsemi sem fram fer hjá STEFi nýtist vel í trúnaðarstörfum fyrir STEF. 

Ég býð mig því fram til áframhaldandi þjónustu í fulltrúaráði STEFs.

Aðildarfélag: FTT

Jón Hlöðver
Áskelsson

Jón Hlöðver Áskelsson fæddist á Akureyri 1945. Tónlistarnám stundaði hann við Tónlistarskólann á Akureyri 1955-65, en stúdentsprófi lauk Jón frá MA 1965. Síðar lá leiðin í Tónlistarskólann í Reykjavík, þar sem hann lauk prófi vorið ‘67. Framhaldsnám í tónlist stundaði hann við Mozarteum Akademíuna í Salzburg, Austurríki, – Orff Institut 1967-69 og við tónlistarháskólann í Hannover í 1969-70.

Haustið 1970 gerðist Jón kennari við Tónlistarskólann á Akureyri og síðar skólastjóri (1974-82 og 84-91). Hann var valinn bæjarlistamaður Akureyrar árið 1990 og hlaut síðar fjögurra ára starfslaun úr Tónskáldasjóði.

Jón Hlöðver hefur samið nokkrar kórmótettur og fjölda einsöngslaga. Einnig hefur hann samið verk fyrir hljómsveitir sem flutt hafa verið opinberlega. Hann samdi líka verk fyrir svifflugvél, sem Arngrímur Jóhannsson dansiði við með svifflugvél á lofti.

Vorið 2021 var flutt opinberlega “Morssinfónían”, í 5 þáttum af SinfNord í Hofi á Akureyri, Þar var fyrrnefndur Arngrímur einleikari á morstæki, en auk þess að vera flugmaður er hann lærður loftskeytamaður. Var þessu verki útvarpað af RÚV 2023.

Jón Hlöðver hefur auk tónsmíða verið þátttakandi í félagsstörfum á ýmsum sviðum. Hann var formaður Tónlistarfélags Akureyrar um margra ára skeið, einn af stofnendum Jazzklúbbs Akureyrar og formaður hans í 20 ár.

Aðildarfélag: TÍ

Karl
Olgeirsson

Karl Olgeirsson er höfundur sem hefur samið mikið af tónlist af ýmsum tegundum, popp, jazz, kvikmyndatónlist og kórtónlist. Hann er einnig útgefandi sem hefur gefið út titla sem  má finna á vínyl og CD auk þess að vera á streymismiðlum. Honum er því ofarlega í huga það nýja og síbreytilega markaðsumhverfi sem við höfundar lifum og hrærumst í og þau verkefni sem takast þarf á við.

Aðildarfélag: FTT

Karl
Örvarsson

Ég Karl Örvarsson hef starfað sem tónlistarmaður í tugi ára við góðan orðstír. Með tímanum hafa réttindamál okkar tónlistarmanna orðið mér hugleiknari og hefur líklega aldrei skipt meira máli en nú að standa vel að þeim. Er ég því tilbúinn að láta til mín taka í þeim efnum og er fús til verka. Tel mig skapgóðan og ljúfan pilt sem alinn er upp af einstæðri móður í stórum systkinahópi. Hef ég því fengið töluverða æfingu í málamiðlunum og þar með góðum mannlegum samskiptum þar sem skoðanir eru virtar og komist er að sameiginlegri niðurstöðu.

Með vinsemd og virðingu,
Karl Örvarsson

Utan félaga

Klara Ósk
Elíasdóttir

Ég heiti Klara Ósk Elíasdóttir og er lagahöfundur, flytjandi og verkefnastjóri með yfir tuttugu ára reynslu í tónlist. Ég starfa daglega með ungu skapandi fólki og þekki bæði grasrótina og faglega innviði tónlistariðnaðarins. Ég er starfandi lagahöfundur með víðtæka þekkingu og áralanga reynslu af alþjóðlegu starfsumhverfi lagahöfunda og hef öðlast mikilvæga reynslu af réttindamálum og innheimtu í því samhengi. Ég hef einnig unnið að margskonar verkefnastýringu, viðburðahaldi og stefnumótun í menningarstarfi og brenn fyrir því að styrkja og stækka stöðu íslenskra höfunda á íslenskum og erlendum vettvangi. Ég vil leggja mitt af mörkum í fulltrúaráði STEFs og styðja við öruggan starfsgrundvöll og sterkari rödd íslenskra lagahöfunda til framtíðar.

Aðildarfélag: FTT

Logi Pedro
Stefánsson

„Kæru félagar, ég býð krafta mína fram í fulltrúaráðið nú í þriðja sinn, ef mér skjátlast ekki, og bið ykkur því auðmjúklega um að veita mér umboð til þess. Ég hef mátað marga hatta og unnið með ógrynni af tónlistarfólki. Starfað sem tónlistarmaður, útgefandi, útvarpsmaður, lagahöfundur osfrv. Verið lengst uppi, lengst niðri, en samt alltaf hress. Ég brenn fyrir sköpun og list, og hef lagt mitt af mörkum í umræðum og aðgerðum því tengdu í gegnum tíðina. 
STEF hefur unnið frábært starf síðustu ár og ég vil taka þátt í takast á við þau næstu, þar sem okkar fólk mætir óvissu og ýmsum áskorunum.
Bestu kveðjur!“

Aðildarfélag: FTT

Magnús Jóhann
Ragnarsson

Magnús Jóhann Ragnarsson hóf tónlistarnám 7 ára hjá Snorra S. Birgissyni, lærði á klarinett í tvö ár í TSDK og útskrifaðist úr MÍT með framhaldspróf í djasspíanóleik árið 2019. Hann hefur þrátt fyrir ungan aldur skapað sér sess sem undanfarin áratug sem óvenju fjölhæfur tónlistarmaður á flestum sviðum tónlistar; sem tónskáld, hljómborðsleikari og upptökustjóri. Hann hefur fengist við fjölbreyttar stefnur og stíltegundir í tónlist, allt frá innhverfum djassi, sígíldum dægurlögum, ómstríðri strengjatónlist til framsækinnar raftónlistar. Hann hefur gefið út níu hljóðrit undir eigin nafni og tvær stuttskífur. Þeirra á meðal farsælar samstarfsplötur með söngkonunni GDRN og djassleikurunum Skúla Sverrissyni og Óskari Guðjónssyni.

Hann var valinn tónlistarflytjandi ársins í opnum flokki á Íslensku tónlistarverðlaununum 2023 og 2025 og hefur einnig hlotið fjölda tilnefninga fyrir eigin verk. Magnús fæst einnig við kvikmynda og leikhústónlist og tónlist hans fyrir kvikmyndina Ljósvíkinga hlaut Eddutilnefningu 2025. Hann hlaut tilnefningu til Grammy verðlaunanna í samstarfi við Ólaf Arnalds árið 2023 fyrir aðkomu sína að hljómplötu hans some kind of piece – piano reworks. Hann er einnig stofnandi og listrænn stjórnandi tónlistarhátíðarinnar State of the Art sem leggur áherslu á samtímatónlist af ýmsum toga. Hann situr í stjórn Stefs 2024-26.

Utan félaga

María Huld
Markan

María Huld Markan Sigfúsdóttir (1980) er fiðluleikari og tónskáld og meðlimur hljómsveitarinnar amiinu. Hún hún útskrifaðist með einleikarapróf á fiðlu frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 2000 og BA í tónsmíðum frá LHÍ árið 2007.

María hefur starfað sem tónlistarflytjandi og tónskáld samfellt frá árinu 2000 og komið víða við, m.a. starfað með hljómsveitinni Sigur Rós í áraraðir sem flytjandi og útsetjari. Hún hefur einnig starfað náið með hinum ýmsu myndlistarmönnum og hljómsveitum hérlendis og erlendis.

Verk Maríu spanna allt litróf tónsmíða, frá sinfónískum verkum, kammerverkum, kórverkum og útsetningum til dansverka, innsetninga og kvikmyndatónlistar. Flestar tónsmíðar hennar hafa verið gefnar út á vegum tónlistarútgáfunnar Sono Luminus og eru fluttar víða um heim.

Aðildarfélag: TÍ

Mikael
Lind

Mikael Lind er 45 ára tónskáld upprunalega frá Svíþjóð sem hefur búið og starfað á Íslandi síðan 2006. Hann hefur gefið út fjölda platna undanfarin ár og einnig samið hljóðverk fyrir listasýningar og hljómsveitarhópa. Mikael er stundakennari í tónlist við LHÍ og vinnur af og til sem verkefnastjóri tónleikahátíða í Norræna húsinu. Hann er meðlimur í Tónskáldafélagi Íslands og hefur setið í nefnd hjá ÚTÓN.

Aðildarfélag: TÍ

Óttarr
Proppé

Ég hefi verið virkur höfundur með hljómsveitunum HAM, dr.spock, Rass ofl. í áratugi. Hef setið í fulltrúaráði frá 2008 og sat í stjórn fyrir hönd utanfélagsmanna í ein 10 ár. Brenn fyrir samstöðu (tón)listamanna og tel að hagsmunabaráttan sé mikilvægari nú en oft fyrr á tímum hátæknivæðingar, gervigreindar og skeytingaleysis um höfundarrétt. Legg áherslu á það að þótt margt sé alvarlegt í heimi hér er líka nauðsynlegt að sé stuð.

Utan félaga

Ragnheiður
Gröndal

Ég heiti Ragnheiður Gröndal og starfa sem tónlistarkona, bæði sem höfundur og flytjandi. Ég hef setið í stjórn FTT um árabil og vil leggja mitt af mörkum til að styrkja stöðu höfunda og taka þátt í að móta framtíð STEFs í síbreytilegu tónlistarlandslagi.

Aðildarfélag: FTT

Sigmar Þór
Matthíasson

Bassaleikarinn og tónskáldið Sigmar Þór Matthíasson hefur verið virkur í íslensku tónlistarlífi um árabil. Hann hefur samið og útsett verk m.a. fyrir Stórsveit Reykjavíkur og leikið með öllu helsta tónlistarfólki þjóðarinnar. Sigmar hefur gefið út þrjár plötur í eigin nafni ásamt því að starfa með hljómsveitinni Brek undanfarin ár og hefur hlotið alls tíu tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna, þar af tvenn verðlaun. Meðfram tónlistariðkun sinni hefur Sigmar sinnt hinum ýmsu kennslu-, félags- og stjórnarstörfum, m.a. hjá Reykjavíkurborg, FÍH og Jazzhátíð Reykjavíkur. 

Aðildarfélag: FTT

Sóley
Stefánsdóttir

Sóley Stefánsdóttir er tónskáld og lagahöfundur úr Hafnarfirði. Hún útskrifaðist af tónsmíðabraut Listaháskóla Íslands árið 2010 og hefur síðan þá gefið út fjölmargar plötur og verk sem hlotið hafa bæði verðlaun og viðurkenningar. Sóley var tilnefnd til Norrænu Tónlistarverðlaunanna árið 2022 og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sama ár fyrir plötu sína Mother Melancholia. 

Árið 2020 hlotnaðist Sóleyju sá heiður að fá hvatningarverðlaun úr minningarsjóði Kristjáns Eldjárns. Einnig hefur hún unnið að tónlist fyrir kvikmyndir, leikhús, dansverk, útvarp og stuttmyndir. 

Þann 24.október síðastliðinn, á 50 ára afmæli kvennaverkfallsins á Íslandi, unnu Sóley og listakonan Samantha Shay saman að verkinu quean : kven : queen. Í verkinu rannsökuðu þær hinar ýmsu hliðar feminísmans, hið mjúka form kvenlíkamans, hávaða og einfaldleika, þögnina og flókið móðurlífið. Verkið var unnið með Salinn í huga og hlaut nýlega verðlaun fyrir tónlistarviðburð ársins (best music event) á Reykjavík Grapevine Music Awards. 

Frá útgáfu fyrstu plötu Sóleyjar kom út hefur hún ferðast um allan heim til að flytja tónlist sína en hún kennir einnig tónsmíðar við Listaháskóla Íslands og lagasmíðar við Menntaskóla í tónlist. Sóley situr einnig í stjórn STEFS, FTT og KÍTÓN (félags kvenna í tónlist). 

Aðildarfélag: FTT

Sunna Margrét
Þórisdóttir

Sunna Margrét heiti ég og býð mig fram í fulltrúaráð STEF 2026-2028. Ég er lagahöfundur, textahöfundur og útgefandi og hef starfað faglega í tónlist frá árinu 2010. Ég stofnaði útgáfufyrirtæki árið 2019 og hef gefið út bæði eigin tónlist og annarra, komið fram á alþjóðavettvangi og tekið þátt í verkefnum á borð við Keychange og skiptivinnudvöl á vegum Tónlistarborgarinnar.

Ég hef sérstakan áhuga á grasrótarstarfi, jafnrétti í tónlistarbransanum og bættum aðstæðum foreldra í greininni. Sjálf þekki ég mikilvægi þess að finna stuðning og sveigjanleika í skapandi starfi.

Utan félaga

Þuríður
Jónsdóttir

Þuríður Jónsdóttir hefur starfað samfleytt við tónsmíðar í áratugi og á nú mikilvægan alþjóðlegan feril að baki sem tónskáld. Hún hefur viðamikla reynslu sem tónlistarflytjandi, hérlendis og erlendis í klassískri- og nútíma tónlist jafnt sem ritmískri tónlist. Hún hefur öðlast víðtæka þekkingu á fagvettvangi tónlistar á Íslandi sem stjórnarmeðlimur í Tónskáldafélagi Íslands og Íslenskri Tónverkamiðstöð um árabil. 

Þuríður nam flautuleik og tónsmíðar í Bologna á Ítalíu. Eftir áralanga dvöl þar ytra býr hún nú og starfar að list sinni og við tónlistarkennslu í Reykjavík. Undanfarin ár hefur hún ferðast um nokkrar heimsálfur sem flautuleikari með Björk.

Þuríður Jónsdóttir skrifar jafnt sinfónísk verk sem kammerverk af ýmsum toga. Hún hefur skrifað óperu, tónlist við útvarpsleikrit og unnið ýmis samstarfverkefni og margmiðlunarverk.

Verk eftir Þuríði hafa verið flutt af hljóðfærahópunum á borð við Sinfóníuhljómsveit Íslands, Los Angeles fílharmóníusveitina, Caput, Kammersveitina og Adapter.  Þau eru flutt á hátíðum eins og Haustinu í Varsjá, Présences í París, November Music, Klang, Norrænum músíkdögum, ISCM og New Directions. 

Þuríður var tilnefnd til Tónskáldaverðlauna Norðurlandaráðs 2006, 2010 og 2012.

Aðildarfélag: TÍ

Um kosningar til fulltrúaráðs (samandregið úr samþykktum)

Skipan fullrúaráðs

Fulltúaráð er æðsta stofnun STEFs, kjörið af almennum félagsmönnum til tveggja ára í senn. Það fundar að jafnaði tvisvar á ári. Ráðið er skipað 21 fulltrúa. Formenn aðildarfélaga STEFs (Tónskáldafélags Íslands og Félags tónskálda & textahöfunda) eru sjálfkjörnir, en 19 fulltrúar kjörnir í kosningu sem fram fer annað hvert ár. Skulu hið minnsta fimm kjörnir fulltrúar koma úr hvoru aðildarfélagi og fimm hið minnsta úr hópi rétthafa utan félaga.

Hverjir geta boðið sig fram?

Þeir höfundar og aðrir rétthafar sem gert hafa aðildarsamning við STEF hafa atkvæðisrétt og eru kjörgengir í fulltrúaráðið, hafi þeir fengið úthlutað að lágmarki samtals 125.000 kr. á undangengnum þremur árum (þ.e. 2023–2025).

Nánar má kynna sér reglur um kosningar til fulltrúaráðs í samþykktum STEFs (sjá 5. kafla, bls. 8).

Scroll to Top