Umsókn

Óskað er eftir heimild til tónflutnings á eða í (strikið undir eða fyllið út það sem við á):

  • Matsölustað, dansstað, kaffihúsi, bjórkrá eða sambærilegum veitingastað, en staðurinn er
    með sætafjöldanum:
    , ef fleiri tilgreinið sætafjöldann hér . Staðurinn er
    vínveitingaleyfi og þar verður leikin tónlist af hljóðritum s.s. geisladiskum, segulböndum eða úr útvarpi.
    , flatarmál þjónusturýmis: fm.
  • Vinnustað með starfsmönnum, fjöldi vinnustaða .
  • Biðtónlist í símkerfi, fjöldi símtala sem geta verið í bið samtímis .
    • -
    • fjöldi gistiherbergja: .
    dags. í félagsheimilinu/samkomuhúsinu , fjöldi gesta áætlaður miðaverð tónlist leikin af hljómsveit og diskum/plötum/segulbandi , hvaða hljómsveit .
  • Öðru ótilgreindu: .

Almennir skilmálar heimildar til tónflutnings:

  1. STEF heimilar gegn greiðslu leyfisgjalda að flutt sé hvert það tónverk, sem STEF hefur eða fer á hverjum tíma með flutningsrétt að, sbr. þó 4. gr., og SFH heimilar gegn greiðslu leyfisgjalda að notuð séu markaðshljóðrit til opinbers tónflutnings, hvort sem um er að ræða beina notkun hljóðritanna eða óbeina s.s. úr útvarpi eða sjónvarpi.
  2. Leyfisgjöld fara eftir gjaldskrám STEFs og SFH á hverjum tíma og greiðast á þeim gjalddögum, sem þar eru tilgreindir. Félögin geta krafist tryggingar fyrir greiðslu leyfisgjaldanna. Þeir sem byggja rekstur sinn á flutningi tónlistar verða að setja tryggingu fyrir greiðslu leyfisgjaldanna eða greiða leyfisgjöld minnst þrjá mánuði fyrirfram.
  3. Leigi umsækjandinn út sali til þriðja aðila, innheimtir hann gjöld af leigutaka í samræmi við gjaldskrár félaganna og skilar þeim til STEFs á gjalddaga hafi leigutakinn ekki þegar greitt leyfisgjöldin til STEFs. Umsækjandinn ábyrgist greiðslu leyfisgjaldanna.
  4. Til flutnings söngleikja, revía eða annarra slíkra sviðsverka þarf að sækja um heimild sérstaklega og greiða fyrir samkvæmt samkomulagi við STEF, fyrir hönd hlutaðeigandi rétthafa.
  5. Umsækjandinn skal strax tilkynna allar breytingar, sem áhrif kunna að hafa á fjárhæð leyfisgjaldanna.
  6. Til eftirlits með tónflutningi skulu eftirlitsmenn félaganna eiga frjálsan og óhindraðan aðgang að salarkynnum umsækjandans. Sé selt inn í salarkynnin skulu félögin eiga rétt á tveimur aðgöngumiðum án endurgjalds að hverri samkomu.

Dagsetning: /

Umsóknin sendist til:

STEF
Laufásvegi 40
101 Reykjavík

Móttaka umsóknar þessarar af hálfu STEFs og SFH veitir umsækjanda ekki heimild til að flytja tónlist opinberlega nema gegn greiðslu leyfis-gjalda hverju sinni.

Prenta umsókn
 


 

efnisyfirlit síðunnar