Tónleikastaðir sem gert hafa samstarfssamninga við STEF
Eftirtaldir tónleikastaðir hafa gert samstarfssamninga við STEF og innheimta höfundaréttargjöld fyrir STEF. Misjafnt er þó hvort höfundaréttargjöldin eru þá innifalin í leigugjaldi aðstöðunnar eða hvort tónleikastaðurinn innheimtir þau sérstaklega af viðkomandi tónleikahaldara.
Tónleikahaldarar eru minntir á að þeim ber að koma upplýsingum um flutt verk á tónleikum til STEFs, en slíkar upplýsingar eru forsenda úthlutunar höfundaréttargjalda til höfunda.
1. Salurinn í Kópavogi.
2. Græni hatturinn á Akureyri
3. Menningarhúsið Hof á Akureyri
4. Faktorý á Smiðjustíg í Reykjavík
5. NASA (fer eftir miðaverði)
6. Gaukur á Stöng (fer eftir miðaverði)
7. Kaffi Rosenberg á Klapparstíg í Reykjavík
8. Tjarnarbíó við Tjarnargötu í Reykjavík
9. Norræna húsið í Reykjavík
10. Hafnarborg, Menningar og listamiðstöð Hafnarfjarðar
11. Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu í Reykjavík
12. Gaflaraleikhúsið
13. Gamla bíó Leikhús

