Tónleikar

Leyfi þarf fyrir tónleikum

Áður en tónleikar eru haldnir þarf tónleikahaldarinn að afla leyfis til að flytja þau tónverk sem ætlunin er að leika á tónleikunum.  STEF fylgist þó einnig með auglýsingum, bæði í útvarpi, blöðum og á netinu og innheimtir höfundaréttargjöld af þeim tónleikum sem STEF sér auglýsta hafi tónleikahaldari ekki sjálfur samband við STEF. Ef tónleikar eru haldnir án fyrirfram fengins leyfis frá STEFi verður sá aðili, sem lánar eða leigir húsnæði undir tónleikana, krafinn um leyfisgjaldið.

Hér er hægt að sækja um leyfi á netinu.
 
Gjaldskrá vegna tónleika

Af aðgangseyri, að meðtöldum sköttum og opinberum gjöldum, að einstökum tónleikum skal greiða 4%, en þó aldrei lægra en tiltekin lágmarksgjöld sem fara eftir fjölda áhorfenda.  

Þegar um er að ræða stórtónleika eða tónleikaröð með fleiri en 1500 seldum aðgöngumiðum veitir STEF afslátt af höfundaréttargjöldum og er gjaldið þá 2,5% af miðaverði.

Ef tónleikar eru mjög stuttir s.s. hádegistónleikar sem standa einungis í hálftíma er veittur afsláttur af höfundaréttargjöldum. Fyrir tónleika skólakóra eða annarra nemenda sem koma fram sem slíkir er hægt að sækja um afslátt.

Af stærri tónleikum, þar sem ætla má að leyfisgjald fari yfir kr. 20.000 skal tónleikahaldari skila inn tryggingu fyrir væntanlegu leyfisgjaldi og er leyfisgjaldið þá leiðrétt eftir á ef þörf krefur. Annars er leyfisgjald greitt næsta virka dag eftir tónleikana.

Ef tónverk eru fallin úr vernd, þ.e. ef höfundar þeirra létust fyrir meira en 70 árum, og samanlagður tími verndaðrar tónlistar er minni en 1/3 af heildartíma verkanna sem leikin eru, lækkar prósentugjaldið í 2%. Lágmarksgjald lækkar þó ekki.

Leyfisgjald greiðist á skrifstofu STEFs, Laufásvegi 40, Reykjavík, ef tónleikarnir eru haldnir á höfuðborgarsvæðinu eða á Norðausturlandi en annars til umboðsmanns STEFs fyrir landsbyggðina.

Sjá nánar gjaldskrá STEFs.

SFH gjald af tónleikum

Almennt er ekki innheimt SFH gjald (Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda) af tónleikum, enda sé eingöngu um að ræða lifandi tónlist þ.s. flytjendur fá sérstaklega greitt fyrir sitt framlag.  Gjald SFH er almennt 60% af gjaldskrá STEFs.

Af stórtónleikum þ.s. leikin er tónlist af hljóðritum fyrir tónleika og í hléi innheimtir STEF fyrir SFH þeirra gjald í hlutfalli við þann tíma sem slík tónlist er leikin.

Ef tónleikar eru haldnir á veitingastöðum eða dansstöðum greiða slíkir staðir skv. samningum við STEF bakgrunnstónlistargjald sem felur einnig í sér SFH gjald, þannig að ekki er innheimt sérstaklega fyrir SFH í slíkum tilvikum.
 

Upplýsingar um flutt verk

STEF getur ekki úthlutað til höfunda nema að lagalista vegna tónleikanna sé skilað til STEFs. Tónleikahaldarar bera ábyrgð á að koma lagalistum til STEFs. Höfundar og flytjendur geta einnig skilað lagalistum til STEFs. Lagalista er bæði hægt að skila inn fyrir og eftir tónleika. Lagalistum er nú hægt að skila inn rafrænt með því að nota eyðublað á heimasíðu STEFs en einnig er tekið við lagalistum á hvaða formi sem er.

Mikilvægt er að á skýrslunni sé að finna öll tónverk sem flutt eru á viðkomandi tónleikum.

Fastir samningar við tónleikastaði

STEF hefur gert fasta samninga við allnokkra tónleikastaði, þannig að staðirnir sjálfir greiði höfundaréttargjöld vegna tónleika til STEFs vegna þeirra tónleika sem þar fara fram.  Staðurinn sjálfur hefur þá heimild STEFs til að innheimta höfundaréttargjöld af þeim tónleikahöldurum sem halda tónleika hjá staðnum.  Þetta fyrirkomulag hefur í för með sér mikla hagræðingu fyrir STEF svo og tónleikahaldara. Ef tónleikahaldari hefur gert samning við STEF t.d. vegna tónleikaraðar eða tengdra viðburða og fengið afláttarkjör getur hann þá sýnt tónleikastaðnum fram á slíkt og þá innheimtir staðurinn ekki höfundaréttargjöld af viðkomandi tónleikum. 
 

Eigin tónlist höfunda

Jafnvel þótt flytjendur spili eigin tónlist á tónleikum ber að standa skil á höfundaréttargreiðslum til STEFs en í því tilviki fer fjárhæðin nær óskert aftur til viðkomandi höfunda.  Ástæðan er sú að langoftast slæðast með á tónleikum einhver verk eftir aðra höfunda t.d. textahöfunda. Þá er það oft þannig að flytjendur eru fleiri en höfundar tónlistarinnar s.s. þegar um tónleika hjá hljómsveitum er að ræða. Þá getur verið að höfundar hluta tónlistarinnar sem flutt er séu ekki lengur í hljómsveitinni þótt að hún komi enn fram undir sama nafni.  Með því að greiða höfundaréttargjöld af tónleikunum er tryggt að höfundarnir fái réttar greiðslur og þannig þurfa hljómsveitarmeðlimir ekki að skipta því sem þeir fá eftir hverja tónleika eftir því hver hefur samið hvaða lag sem spilað var.
 

Upphitunarhljómsveitir

Sú regla gildir hjá STEFi að ef upphitunarhljómsveit er á tónleikum, fá höfundar þeirrar tónlistar greidd 10% af höfundaréttargreiðslum tónleikana en höfundar laga aðalhljómsveitarinnar fá 90% greiðslunnar. Samtökin fylgja að þessu leyti  þeim reglum sem gilda almennt hjá höfundaréttarsamtökum , t.d í Bretlandi og á Norðurlöndum.  Þessi skipting byggir á því að aðsókn að tónleikum er vegna aðalhljómsveitar sem stendur að tónleikunum.

 

Senda grein

Útlit síðu:


banner2
Þetta vefsvæði byggir á Eplica