Góðgerðartónleikar
Ef tónleikar eru haldnir í góðgerðarskyni getur tónleikahaldari sótt um það fyrir fram til STEFs að felld verði niður höfundaréttargjöld af tónleikunum, enda séu eftirfarandi skilyrði uppfyllt:
1. Umsókn sé skrifleg, undirrituð af tónleikahaldara.
2. Auglýst sé opinberlega að tónleikarnir séu haldnir til að styrkja eitt ákveðið málefni sem miðar að almannaheill eða til að styrkja ákveðinn einstakling eða fjölskyldu sem á við erfiðleika að stríða vegna veikinda, slysfara eða af öðrum sambærilegum ástæðum.
3. Lögð sé fram staðfesting frá þeim, sem flytja tónlist á fyrirhuguðum tónleikum, að þeir geri það án þess að þiggja fyrir endurgjald í hvaða formi sem er.
4. Lögð sé fram dagskrá og yfirlit yfir þau tónverk (lög ásamt texta) sem flutt verða á tónleikunum.
Umsóknareyðublað fyrir góðgerðartónleika ásamt fylgiskjölum skal skilað á skrifstofu STEFs eða á netfangið info@stef.is . Umsóknareyðublaðið er að finna hér umsókn um góðgerðartónleika

