Leyfi og skilmálar
Mismunandi reglur gilda eftir því í hvers konar starfsemi verið er að nota tónlistina. Hafið samband við skrifstofu STEFs til að fá nánari upplýsingar.
Útvarp og sjónvarp
Til þess að reka útvarpsstöð eða sjónvarpsstöð, hvort heldur er tímabundið eða að staðaldri, þarf að fá leyfi ýmissa aðila, m.a. STEFs til tónflutnings.
Ef um skammtímaútvarp er að ræða innheimtir STEF að jafnaði gjöld fyrir SFH (Samband flytjenda og hljómplötuútgefenda), og er SFH hlutinn 60% af gjaldi STEFs og leggst ofan á það. Leyfi STEFs, ásamt öðrum gögnum, þarf að leggja fyrir Útvarpsréttarnefnd, sem veitir útvarpsleyfið.
Gjaldskrá fyrir svæðisbundnar útvarpsstöðvar og sjónvarpsstöðvar er miðuð við árlegan senditíma, en það er heildarútsendingartími stöðvar en ekki aðeins sá tími sem tónlist er send út á stöðinni. Þá er gjald fyrir stöð sem aðeins nær til dreifbýlis helmingi lægra en gjald fyrir útvarp sem nær til Reykjavíkur eða annars þéttbýlis.
Sérstakur taxti er í gildi fyrir skammtímaútvarp. Skammtímaútvarp telst það vera þegar útvarpað er skemur en einn mánuð. Sé útvarpað lengur en einn mánuð er miðað við útsendingartíma.
Gjald vegna skammtímaútvarps þarf að greiða fyrirfram nema viðunandi trygging sé sett. Vegna heilsársútvarps verður að setja tryggingu fyrir minnst þriggja mánaða gjaldi.
Kvikmyndahús
Kvikmyndahúsum ber að greiða til STEFs ákveðið hlutfall af aðgangseyri að kvikmyndasýningum, að meðtöldum öllum sköttum og opinberum gjöldum, og er þetta hlutfall 1%. Lágmarksgjald sem kvikmyndahús skulu greiða, hvort sem um er að ræða fastan rekstur eða ekki, skal vera kr. 67 á hvert sæti eða kr. 6.719 á ári. Sjá gjaldskrá.
Leikhús
Af aðgangseyri að leiksýningum, að meðtöldum öllum sköttum og opinberum gjöldum, skal greiða 0,25-1% eftir því hversu mikil tónlist er flutt í hlutaðeigandi leikverki. Lágmarksgjald, sem leikhús skulu greiða, hvort sem um er að ræða fastan rekstur eða ekki, er nú kr. 111 á hvert sæti eða kr. 11.111 á ári. Láta skal samtökunum í té upplýsingar um hvaða tónlist er notuð, titla, höfunda og tímalengd innan verksins, svo og endanlegan sýningafjölda, þegar hann liggur fyrir. Sjá gjaldskrá.
Skemmtanir, dansleikir og samkomur
Þegar fyrirtæki, félagasamtök, stofnanir eða aðrir halda ráðstefnur, veislur eða samkomur þar sem á sér stað tónflutningur, ber að afla leyfis hjá STEFi. Á það t.d. við um árshátíðir og þorrablót fyrirtækja og félagasamtaka. Ef um er að ræða lokuð einkasamkvæmi, svo sem afmæli, fermingaveislur, brúðkaupsveislur eða erfidrykkjur þarf ekki leyfi hjá STEFi.
Ekki skiptir máli hvar samkoman er haldin, hvort hún er haldin á vinnustað, veitingastað eða í útleigðum sal hótels eða undir berum himni.
Ef tónlist er flutt af hljóðritum þarf ennfremur leyfi hjá SFH, (Sambandi flytjenda og hljómplötuframleiðenda) en það tekur við þeirri greiðslu sem hljóðfæraleikarar, söngvarar og hljómplötuframleiðendur eiga rétt á þegar leikin er tónlist af upptökum. Til einföldunar sér STEF um að innheimta það gjald einnig.
Ekki skiptir máli hvort um sé að ræða tónlist eftir erlenda eða innlenda höfunda.
Það er ævinlega sá sem stendur fyrir skemmtun eða samkomu sem er ábyrgur fyrir því að sækja um leyfið til að flytja tónlist og greiða til STEFs - hver svo sem flytjandi tónlistarinnar er. Til einföldunar hefur STEF þó gert samstarfssamninga við marga aðila sem leigja út sali. Innheimta þessir aðilar höfundaréttargjöld af þeim sem standa að viðkomandi viðburðum og skila þeim til STEFs. Ef sá sem leigir út salinn innheimtir ekki höfundaréttargjöld og skilar til STEFs, verður sá aðili sem stendur að samkomunni sjálfur að afla leyfis hjá STEFi.
Leyfið þarf að liggja fyrir áður en samkoma er haldin. Sé það ekki gert er það brot á lögum og getur varðað skaðabótum. Með því að sækja um leyfi og greiða fyrirfram hafa skipuleggjendur auk þess tækifæri til að taka þennan kostnaðarlið með inn í fjárhagsáætlun sína.
Leyfisgjald fer eftir eðli samkomunnar. Nauðsynlegt er fyrir STEF að fá upplýsingar um hvers konar samkomu er um að ræða. Gjaldið fer eftir fjölda gesta og hvort greiddur er aðgangseyrir. Um þetta allt getur þú fengið nánari upplýsingar með því að hafa samband við STEF eða skoða Gjaldskrá STEFs.
Veitingahús, hótel
Hvort sem tónlistin er notuð til að skapa þægilegt andrúmsloft á hóteli, veitingastað, diskóteki, krá eða á stað þar sem leikin er lifandi tónlist, er hún mikilvægur þáttur í að afla stöðunum tekna. Tónlistin laðar að. Tónlist er samin af einum eða fleiri höfundum sem með vísan til höfundalaga geta litið á verk sín sem einkaeign sem enginn má nota opinberlega nema að þeir veiti leyfi sitt.
Það er mikilvægt að fá heimild frá STEFi áður en gestunum er boðið upp á tónlist. Gleymist það, er það brot á höfundalögum og getur haft í för með sér aukakostnað og óþægindi.
Ef veitingahús eða hótel er með útvarps- eða sjónvarpstæki í gangi á stöðum sem almenningur hefur aðgang að telst vera um opinberan tónflutning að ræða og sækja þarf um leyfi hjá STEFi.
Eigendur veitinga- og gistihúsa sem standa fyrir opinberum flutningi tónlistar í tengslum við reksturinn er ábyrgir og skyldugir til að afla leyfis frá STEFi. Leyfið gildir þó aðeins fyrir þær aðstæður sem gefnar eru upp um daglegan rekstur. Þegar félög, stofnanir og aðrir aðilar halda dansleiki eða veislur í salarkynnunum þurfa viðkomandi að afla leyfis hjá STEFi og greiða til STEFs samkvæmt gildandi gjaldskrá, III D, sjá Skemmtanir, einkasamkvæmi.
Þegar samkomur eru haldnar í samvinnu við þriðja aðila, svo sem þegar sýndir eru söngleikir, revíur eða kabarettar, þá þarf líka að afla leyfis hjá STEFi og greiða til STEFs samkvæmt gildandi gjaldskrá.
Félögum í SAF, Samtökum atvinnurekenda í ferðaþjónustu, veitinga- og gistihúsa, er veittur sérstakur afsláttur.
Verslanir
Alltaf þarf að greiða til STEFs þegar leikin er tónlist á stöðum þar sem tekið er á móti viðskiptavinum, hvort heldur tónlistin kemur frá útvarpstæki, sjónvarpi, segulbandi eða annarstaðar frá. Og tónlistin er vel þegin af viðskiptavinum og hefur veruleg áhrif á upplifun viðskiptavinarins í versluninni og kauphegðun hans. Öllum er ljóst að þessi kostnaðarliður, sem ekki getur talist hár, skilar sér margfalt til baka í aukinni sölu og ánægðum viðskiptavinum.
Hárgreiðslustofur, snyrtistofur, heilsuræktir og sólbaðsstofur
Alltaf þarf að greiða til STEFs þegar leikin er tónlist á stöðum þar sem tekið er á móti viðskiptavinum, hvort heldur tónlistin kemur frá útvarpstæki, sjónvarpi, segulbandi eða annarstaðar frá. Og tónlistin er vel þegin af viðskiptavinum og hefur veruleg áhrif á líðan hans. Öllum er ljóst að þessi kostnaðarliður, sem ekki getur talist hár, skilar sér margfaldur til baka í aukinni sölu og ánægðum viðskiptavinum.
Annað
Ef starfsemi fellur ekki undir ofangreinda flokka þá skuluð þið endilega hafa samband við skrifstofu STEFs og fá upplýsingar.
Algengur misskilningur
Höfundalögin eru margslungin og því á sér oft stað ýmiskonar misskilningur.
Til dæmis halda sumir að hafi þeir greitt afnotagjald útvarps eða sjónvarps, sé þeim frjálst að leika tónlist fyrir viðskiptavinina af því að STEF fær greitt frá útvarpsstöðvunum. En sú greiðsla er aðeins fyrir heimild til að senda út tónlist, ekki fyrir rétt viðtakandans til að leika tónlistina þar sem hún nær eyrum almennings. Ef afnotagjaldið ætti að fela þann rétt í sér, yrði það að vera miklu hærra.
Hvað er "opinber flutningur"?
Nær undantekningarlaust er um opinberan flutning að ræða sé ekki verið að leika tónlist innan fjögurra veggja heimilisins. Í skilningi höfundalaga eru staðir, sem viðskiptavinir hafa aðgang að, opinberir staðir, þar með taldar verslanir, hárgreiðslustofur, rakarastofur, heilsuræktarstöðvar, sólbaðsstofur o.s.frv.
Hvernig er gjaldið reiknað?
Höfundaréttargjöld fara eftir flatarmáli verslana, hárgreiðslustofa, snyrtistofa og líkamsræktarstöðva og er lágmarksgjald kr. 8.893,- skv. Gjaldskrá STEFs, liður IV A. Gjaldið er greitt einu sinni á ári. Að auki greiðist leyfisgjald til SFH, 60% álag eða kr. 5.336.
Höfundaréttargjöld fara eftir sætafjölda veitingastaða og fjölda samkomugesta ef um útleigu sala vegna mannfagnaða er um að ræða.
Hvert á að greiða?
Til skrifstofu STEFS að Laufásvegi 40, 101 Reykjavík fyrir höfuðborgarsvæðið og Eyjafjarðar og Þingeyjarsýslur info@stef.is . Sími 561 6173. Fyrir landið að öðru leyti er greitt til umboðsmanns STEFs, Gunnars Stefánssonar; gunnar@stef.is, í síma 691 0800.
Hvert fara peningarnir?
STEF leitast eftir megni að tryggja eins réttláta skiptingu á hinu innheimta fé og hægt er, þannig að höfundar fái greitt í samræmi við hversu oft tónlist þeirra er leikin. Því tekur STEF við tónflutningsskýrslum frá útvarpsstöðvum sem halda skrá yfir tónlistina sem þær senda út. Einnig er fylgst með flutningi tónlistar á tónleikum, í kvikmyndahúsum, leikhúsum og víðar.
Ekki er gerð krafa um tónflutningaskýrslur frá verslunum, líkamsræktarstöðvum, hárgreiðslustofum og öðrum stöðum þar sem tónlist er leikin opinberlega og sparar það mikla vinnu.

