Ég ætla að gefa út mína eigin tónlist á hljóðriti – hvað á ég að gera?
Ef þú gefur sjálfur út þína eigin tónlist á hljóðriti (s.s. CD, MC, DVD audio eða vínyl) í allt að 1000 eintökum getur þú verið undanþeginn NCB höfundaréttargjöldum að uppfylltum neðangreindum skilyrðum (einnig kallað „eigin útgáfa“ e. related party recording).
Ef þú lætur framleiða fleiri en 1000 eintök – og neðangreind skilyrði eru uppfyllt – getur þú valið að greiða aðeins 10% af höfundaréttargjaldi (umsýslukostnaður NCB).
Smelltu hér til að nálgast staðfestingu sem þarf að senda til NCB
Skilyrði fyrir undanþágu á NCB höfundagjöldum:
- Útgefandi (sá sem ber ábyrgð á útgáfu hljóðritsins) verður að vera sá sami og laga- og textahöfundur laganna á hljóðritinu. Ef útgefandi á eitt eða fleiri lög og jafnframt texta sjálfur, en gefur einnig út efni eftir aðra, þarf hann að greiða fyrir það efni sem hann á ekki. Ef upplagið er stærra en 1000 eintök er aðeins hægt að nota „10% aðferðina“ ef útgefandi á öll lög og texta á hljóðritinu.
- Ef tveir eða fleiri höfundar semja saman lögin á hljóðritinu og gefa sameiginlega út hljóðritið, er einnig hægt að veita undanþágu frá höfundagjöldum.
- Útgefandi (sá sem ber ábyrgð á útgáfu hljóðritsins) ber lagalega ábyrgð á því að greiða höfundagjöld og uppfylla skilyrði NCB.
- Ef hljóðritið er framleitt undir sérstöku vörumerki eða af lögaðila (fyrirtæki) verður það að vera að fullu í eigu útgefandans.
Athugið eftirfarandi tilvik:
- Ef um endurútgáfu eða endurprentun er að ræða á áður útgefnu hljóðriti gilda undanþágur ekki.
- Ef útgáfan er á nokkrum miðlum í einu (CD, DVD audio, MC o.fl.) getur fjöldi gjaldfrjálsra eintaka ekki farið yfir 1000 eintök.
- Ef útgáfan er box með nokkrum diskum þá er litið á hvert box sem eina einingu – sem þýðir að fyrstu 1000 boxin eru undanþegin NCB höfundagjöldum.
- Ef rétturinn á tónlistinni er ekki 100% í eigu höfundarins (laga- og textahöfundar) – t.d. ef hluti af réttinum hefur verið framseldur til forlags – gildir undanþágan ekki (nema að viðkomandi forlag sé 100% í eigu höfundarins).
Svona ferðu að:
- Smelltu hér til að nálgast rafræna umsókn á ensku
- Á skjámynd með fyrirsögninni „Recording detail“ verður þú að velja „já“ undir yfirskriftinni „Related party recording“ (eigin útgáfa). Þá birtist krækja á staðfestinguna sem nefnd er hér að ofan. Vinsamlegast fyllið út staðfestinguna, undirritið og sendið til STEFs.
- Þegar NCB hefur móttekið undirritaða staðfestingu verður umsóknin afgreidd.
- Ef þú óskar eftir „10% aðferðinni“ (útskýrt hér að ofan) verður þú að geta þess skilmerkilega á umsókninni – það getur þú gert á síðustu síðu umsóknarinnar undir „Remarks“ (athugasemdir).

