Get ég sett nýjan texta við áður útgefið lag eða gert nýtt lag við áður útgefinn texta?
Þegar nýr texti er gerður við eldra lag þarf að leita samþykkis lagahöfundar. Það að setja nýjan texta við lag telst breyting á upprunalegu verki og er slíkt óheimilt skv. 4. gr. höfundalaga 73/1972, nema með leyfi lagahöfundar. Ekki skiptir máli í því sambandi hvort um íslenskt eða erlent lag er að ræða. Mjög misjafnt er hvort lagahöfundar séu tilbúnir til að veita samþykki sitt fyrir því að nýr texti sé gerður við lög þeirra. STEF aðstoðar þá sem vilja gera nýja texta við að finna upplýsingar um hver rétthafi lagsins er, en að öðru leyti verður viðkomandi sjálfur að leita eftir samþykki rétthafans. Slíkt samþykki fæst stundum gegn því að lagahöfundurinn fái greidd þau höfundaréttargjöld sem annars færu til textahöfundarins. STEF úthlutar ekki höfundaréttargreiðslum til höfunda texta sem hafa verið gerðir við eldri lög án viðhlítandi samþykkis lagahöfundar. Sama regla gildir ef gert er nýtt lag við áður útgefinn texta.
Ef verk er gefið út í breyttri mynd án samþykkis rétthafa, getur höfundur og/eða útgefandi orðið skaðabótaskyldur gagnvart viðkomandi rétthafa. Við útgáfu hljóðrita gengur NCB út frá því að nauðsynlegra leyfa vegna nýrra texta við eldri lög hafi verið aflað og hefur slíkt ekki áhrif á innheimtu höfundaréttargjalda af útgáfunni.

