Spurt og svarað

Ég ætla að gefa út mína eigin tónlist á hljóðriti – hvað á ég að gera?

Ef þú gefur út þína eigin tónlist á hljóðriti (s.s. CD, MC, DVD audio eða vínyl) í allt að 1000 eintökum getur þú verið undanþeginn NCB höfundaréttargjöldum

Lesa meira
 

Get ég sett nýjan texta við áður útgefið lag eða gert nýtt lag við áður útgefinn texta?

Þegar nýr texti er gerður við áður útgefið lag þarf að leita samþykkis lagahöfundar. Það að setja nýjan texta við lag telst breyting á upprunalegu verki  og er slíkt óheimilt skv. 4. gr. höfundalaga 73/1972, nema með leyfi lagahöfundar

Lesa meira
 

Þarf að greiða höfundaréttargjöld af útförum?

Við útfarir á sér stað opinber tónflutningur skv. höfundalögum. Með samningi við STEF fá útfaraþjónustur heimild til að nota tónlist og texta við útfarir og um leið annast þær innheimtu höfundaréttargjaldanna fyrir STEF.

Lesa meira
 

Ég ætla að halda tónleika, hvað á ég að gera?

Á tónleikum fer fram opinber tónflutningur og ber að greiða höfundum fyrir slíkt samkvæmt gjaldskrá STEFs. Ef eingöngu eru flutt verk sem ekki eru lengur í vernd (verk eru í vernd í 70 ár frá andláti höfundar) eru ekki innheimt höfundaréttargjöld af tónleikunum. Hugsanlegt er þó að jafnvel þótt tónverkin séu ekki í vernd, geta textar og útsetningar notið verndar.

Lesa meira
 

Útlit síðu:



banner4
Þetta vefsvæði byggir á Eplica