Systurfélög

Innlend systurfélög

Auk eigin innheimtutekna fyrir flutning og fjölföldun verka hefur STEF umstalsverðar tekjur frá systurfélögum sínum, IHM, Innheimtumiðstöð gjalda samkvæmt 11. grein höfundalaga, og FJÖLÍS sem innheimtir gjöld fyrir ljósritun og skylda fjölföldun verndaðara verka.

FJÖLÍS

Með samningi frá 6. maí 1983 milli menntamálaráðuneytisins annarsvegar og samtaka Blaðamannafélags Íslands, Félags íslenskra bókaútgefenda, Rithöfundasambands Íslands, Tónskáldafélagsins og Sambands tónskálda og eigenda flutningsréttar hins vegar, var samið um greiðslu fyrir ljósritun og aðra hliðstæða eftirgerð íslenskra rita til notkunar við kennslu í skólum sem reknir eru af ríkinu eða styrktir eru að staðaldri af almannafé, og er svo kveðið á í samningi þessum að sérstök samtök sjái um gæslu þeirra réttinda sem samningurinn tekur til. Í samningnum er kveðið á um sérstakan gerðardóm til að úrskurða um fjárhæðir og áætla síðan fjölda gjaldskyldra ljósritaðra síðna í skólum. Dómur í málinu var kveðinn upp hinn 4. maí 1984 og stofnfundur hinna nýju samtaka var haldinn hinn 22. ágúst 1984. Samtökin hlutu nafnið FJÖLÍS og voru samþykktir þeirra staðfestar af menntamálaráðuneytinu 30. desember 1985.

Megintilgangur þeirra er að gæta fjölföldunarréttar yfir ritum, þ.á m. að innheimta og skipta greiðslum sem inntar eru af hendi sem endurgjald fyrir fjölföldunarrétt. Séu félögin ósammála um skiptingu kemur málið til kasta gerðardóms sem sker úr ágreiningi milli aðildarfélaganna um skilning á samþykktum FJÖLÍS, um meðferð fjár og skiptingu þess.

Núverandi formaður FJÖLÍS er Ragnar Aðalsteinsson, hrl., fulltrúi Rithöfundasambands Íslands.

Fulltrúi STEFs í stjórn FJÖLÍS er Kjartan Ólafsson, tónskáld.

Tekjur þær sem STEF fær frá FJÖLÍS renna í s.k. Tónmenntasjóð II (Nótnasjóð) og er úthlutað úr þeim sjóði eftir því sem umsóknir berast.


IHM - Innheimtumiðstöð gjalda skv. 11. gr. höfundalaga - (Auð bönd)


Upphafið að IHM má rekja til þess að STEF, SFH og Rithöfundasamband Íslands sendu frá sér sameiginlegt erindi í febrúar 1980 þar sem þess var farið á leit að lögfest yrði gjald af auðum hljóm- og myndböndum. Lög um þetta efni og fleiri nýmæli í höfundarétti voru samþykkt vorið 1984, nánar tiltekið lög nr. 78/1984. Í samræmi við ákvæði laganna voru settar nánari reglur um gjaldið með reglugerð nr. 141/1985.

Í lögunum er gert ráð fyrir því að sett sé á stofn sameiginleg innheimtumiðstöð samtaka rétthafa, þar með talinna listflytjenda og framleiðenda, til að innheimta höfundaréttargjöld þau sem lögin taka til.

Innheimtumiðstöðin var stofnuð og samþykktir hennar staðfestar af menntamálaráðuneytinu hinn 10. desember 1985. Stofnaðilar miðstöðvarinnar voru: STEF, Samtök tónskálda og eigenda flutningsréttar, SFH, Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda og Rithöfundasamband Íslands. Fleiri félög hafa bæst við s.s. Félag kvikmyndagerðarmanna og Hagþenkir, sem er félag höfunda fagbóka og kennsluefnis.


Aðildarfélög IHM


STEF, Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar

SFH, Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda

R.Í., Rithöfundasamband Íslands

B.Í., Blaðamannafélag Íslands

SÍK, Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda

FK, Félag kvikmyndagerðarmanna

SKL, Samtök kvikmyndaleikstjóra

Félag leikstjóra á Íslandi

Hagþenkir

Myndstef

FÍL, Félag íslenskra leikara

FÍH, Félag íslenskra hljómlistarmanna



Stjórn IHM


Stjórn félagsins er skipuð átta mönnum. Tveir eru tilnefndir af STEFi, tveir af SFH, einna af Rithöfundasambandi Íslands, einn af Sambandi íslenskra kvikmyndaframleiðenda, einn af Samtökum kvikmyndaleikstjóra og einn af Myndstefi. Í fulltrúaráði félagsins eiga öll aðildarfélögin fulltrúa og óskoraða aðild.

Því fé, sem úthlutað er til innlendra rétthafa á vegum STEFs, er í grófum dráttum skipt á milli aðildarfélag STEFs, Félags tónskálda og textahöfunda og Tónskáldafélags íslands, þannig að FTT fær í sinn hlut u.þ.b. 3/4 og TÍ u.þ.b. 1/4 af þeirri fjárhæð sem til úthlutunar er hverju sinni, sbr. Tónmenntasjóður III.


Daglegur rekstur IHM


Sigríður Guðjónsdóttir, gjaldkeri STEFs, sér um daglegan rekstur IHM og er afgreiðslutíminn því sá sami og skrifstofu samtakanna þ.e. milli 10-12 og 13-15 alla virka daga.

Símanúmer STEFs er 561 6173.


Erlend systurfélög

Vefsíður, netföng, heimilisföng, símanúmer og faxnúmer fjölmargra erlendra systurfélaga má finna á síðunni Á öðrum slóðum.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


 

efnisyfirlit síðunnar