Samstarfsaðilar
Nokkur önnur samtök en STEFog NCB gæta hagsmuna rétthafa á sviði tónlistar. Samband flytjenda og hljómplötuútgefenda, skammstafað SFH, gætir þannig hagsmuna flytjenda, svo sem hljóðfæraleikara og söngvara, og hljómplötuframleiðenda, en bæði flytjendur og hljómplötu-framleiðendur njóta réttar, sem er nátengur höfundarétti, yfir þeim verkum sem þeir hafa flutt og gefið út. Þá má nefna ,,regnhlífarsamtökin" FJÖLÍS og IHM, en þessi samtök sjá um að innheimta gjöld fyrir fjölbreyttan hóp rétthafa, FJÖLÍS vegna fjölföldunar á verkum í skólum og víðar og IHM vegna sölu á auðum hljóðböndum og myndböndum, svo og hljóð- og myndbandstækjum. STEF á aðild að FJÖLÍS og IHM og sér um að úthluta tekjum frá þessum samtökum til tónskálda og textahöfunda.
SFH - Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda
Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda, SFH, var stofnað á árinu 1973. Aðildarfélög eru þessi: Félag íslenskra hljómlistarmanna, Félag íslenskra tónlistarmanna, Félag íslenskra leikara, Samband íslenskra karlakóra, Samband blandaðra kóra, Samband íslenskra lúðrasveita og Samband hljómplötuframleiðenda. Félagið er löggilt af menntamálaráðuneytinu.
Tilgangur sambandsins er að gæta réttar flytjenda og hljómplötuframleiðenda til heimtu gjalda af markaðshljóðritum (geislaplötum, snældum o.s.frv.) skv. 47 grein höfundalaga.
Helstu greiðendur eru: Útvarpsstöðvar, veitingahús, verslanir, vinnustaðir og aðrir aðilar sem nota hljóðrit til tónflutnings. Um innheimtu SFH-gjalda sér sambandið sjálft að hluta, að hluta til STEF.
Innheimtuhlutfall STEFs fyrir SFH er nú 60% af STEF-gjaldinu.
Ísland hefur fullgilt svokallaðan Rómarsáttmála til verndar listflytjendum og hljómplötuframleiðendum og gætir sambandið því ekki aðeins hagsmuna íslenskra rétthafa heldur einnig erlendra.
Úthlutun nettótekna (tekjur að frádregnum kostnaði) er einstaklingsbundin til hljómplötuframleiðenda (útgefenda), en "kollektív" hjá flytjendafélögum, þ.e. þau leggja sinn hluta í félagssjóð. Eftir gildandi reglum rennur helmingur ráðstöfunarfjár til flytjenda og helmingur til framleiðenda.
Höfundaréttarfélag Íslands
Markmið Höfundaréttarfélagsins er að efla þekkingu á höfundarétti og stuðla að þróun þeirrar greinar lögfræði. Félagsmenn eru lögfræðingar sem fást við höfundaréttarmál og/eða sérþekkingu á höfundarétti. Félagið gengst fyrir ráðstefnum og fræðslufundum og tekur að auki þátt í samstarfi nærræna höfundaréttarfélaga.
CISAC
CISAC er skammstöfun fyrir Confédération Internationale des Sociétés d'Auteurs et Compositeurs sem útleggst: Alþjóðasamband höfundaréttarfélaga. Í samtökum þessum eru félög sem eiga beina aðild að sambandinu svo og önnur félög með óbeina aðild, svo sem rithöfunda- og þýðendafélög. Beina aðild eiga öll höfundaréttarsamtökin, sem einnig eru nefnd systursamtök.
Þing samtakanna er haldið annaðhvort ár með þáttöku fulltrúa allra aðildarfélaga. Í ár verður þingið haldið í októberrmánuði, í Seoul í Suður-Kóreu. Fulltrúar Íslands (STEFs) verða Magnús Kjartansson, formaður STEFs, Kjartan Ólafsson, varaformaður STEFs og Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri STEFs. Á þingum sambandsins eru rædd og borin upp mál sem snerta höfundaréttargæslu og sameiginleg hagsmunamál. Tækniþróunin hefur undanfarið verið ofarlega á baugi og eru sameiginlegar nefndir starfandi í þeim málum og fleirum.
GESAC
GESAC er skammstöfun fyrir Groupement Européen des Sociétés d'Auteurs et Compositeurs. Samtökin eru Evrópusamband allra höfundaréttarfélaga og eiga þau óbeina aðild að CISAC.
