Íslensk tónverkamiðstöð

Íslensk tónverkamiðstöð, ITM, var stofnuð árið 1968 og er ætlað eins og segir í samþykktum hennar ,,...að auðga íslenskar tónbókmenntir og auka útbreiðslu þeirra. Til þess skulu stjórnendur miðstöðvarinnar hafa að leiðarljósi gildi metnaðarfullrar tónsköpunar og margbreytileika þeirrar tónlistar sem samin er í landinu." Miðstöðin er í eigu félaga sinna - íslenskra tónskálda sem ganga til liðs við hana. Miðstöðin nýtur fjárhagslegs stuðnings frá hinu opinbera en aflar einnig fjár með sölu á nótum og hljóðritum jafnframt því sem hún nýtur ýmissa styrkja. Miðstöðin lætur sig varða allar tegundir tónlistar.

Tónverkamiðstöðin rekur stærsta safn íslenskra tónsmíða á nótum. Þar eru hátt í átta þúsund íslenskar tónsmíðar eftir 250 íslensk tónskáld og eru nótur gefnar út eftir beiðni. Upplýsingar um þessi verk leggja grunninn að upplýsingaþjónustu miðstöðvarinnar um íslenska tónlist.

Gagnagrunnur Íslenskrar tónverkamiðstöðvar var opnaður á netinu síðla árs 2004 og hefur fengið mikið lof.

Á hverju ári berast til miðstöðvarinnar 3000-4000 fyrirspurnir um íslenska tónlist, tónskáld, íslenska tónlistarmenn og almennt um tónlistarlíf í landinu. Fyrirspurnirnar eru frá almenningi, innlendum og erlendum fræðimönnum, tónlistarskólum og háskólum, bókasöfnum heima og erlendis, íslenskum og erlendum dagskrárgerðarmönnum, blaðamönnum og gagnrýnendum, listamönnum, hljómsveitarstjórum og hljómsveitum hvarvetna úr heiminum. Þá nýta fjölmargir sér heimasíðu Tónverkamiðstöðvarinnar þar sem hægt er að skoða upplýsingar um íslenskar tónsmíðar og tónskáld.

Tónverkamiðstöðin stundar kynningarstarf með tvennum hætti: Annars vegar stendur hún að einstökum kynningum t.d. í samstarfi við flytjendur á ferðalögum eða í samstarfi við íslensk sendiráð erlendis. Hins vegar er miðstöðin í samstarfi við norrænar tónverkamiðstöðvar um kynningu á norrænni tónlist.

Tónverkamiðstöðin stendur fyrir útgáfu á íslenskri tónlist á geisladiskum og nótum. Leitast er við að gefa sem skýrasta mynd af þeirri fjölbreytni sem ríkir í íslenskri tónsmíðun, jafnframt því að varpa ljósi á tónskáld og flytjendur. Geisladiskarnir eru mikilvægur hlekkur í upplýsingamiðlun og kynningarstarfi og langstærsta hluta hvers upplags var dreift endurgjaldslaust um allan heim.

 

 

Senda grein

Útlit síðu:



banner4
Þetta vefsvæði byggir á Eplica