Almennt um höfundarétt

Tónskáld og textahöfundar hafa höfundarrétt að þeirri tónlist og þeim textum sem þeir hafa samið. Í því felst að leita þarf leyfis hjá þeim til þess að verk þeirra verði löglega prentuð, tekin upp, t.d. á hljómplötur, geisladiska, hljóðbönd eða myndbönd, eða flutt opinberlega. Samkvæmt íslenskum höfundalögum öðlast tónskáld og textahöfundur höfundarétt sjálfkrafa um leið og þeir hafa skapað verk sitt.

Er rétturinn einhvers virði?

Höfundarétturinn sem slíkur yrði lítils virði ef tónskáld og textahöfundar gætu ekki fylgt því eftir að aðrir misnotuðu ekki rétt þeirra. Þetta er hins vegar erfiðleikum bundið, ekki síst á sviði tónlistar. Ástæðan er einkum sú að þeir, sem flytja tónlist eða hagnýta hana með öðrum hætti, nota í mörgum tilvikum fleiri verk en eitt eftir mismunandi tónskáld og textahöfunda. Í slíkum tilvikum væri það illmögulegt fyrir notendurna að fá leyfi hjá hverjum og einum höfundi í hvert skipti. Ef ekkert væri að gert yrði niðurstaðan væntanlega sú að tónlistin yrði notuð án leyfis og höfundarnir fengju í fæstum tilvikum nokkurt endurgjald fyrir notin.

Hver sér um að greitt sé fyrir not af tónlist og textum?

Í flestum löndum heims hafa verið stofnuð höfundaréttarsamtök sem sjá um að gæta hagsmuna tónskálda og textahöfunda, hvort sem um er að ræða flutningsréttindi, þ.e. flutning á verkum í útvarpi (hljóðvarpi og sjónvarpi), á tónleikum, dansleikjum eða veitingastöðum, í verslunum eða kvikmyndahúsum, á fjölmennum vinnustöðum o.s.frv., eða upptökuréttindi, svo sem upptöku á hljómplötur, geisladiska, hljóðbönd eða myndbönd. Hér á Íslandi er það Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar, skammstafað STEF sem gætir hagsmuna tónskálda og höfunda texta að tónlist á sviði flutningsréttar, en Nordisk Copyright Bureau, skammstafað NCB, sem gætir hagsmunanna á sviði upptökuréttar. Þessi hagsmunagæsla er alþjóðleg. Höfundaréttarsamtök á borð við STEF og NCB er að finna í flestum löndum heims og hafa bæði STEF og NCB gert gagnkvæma samninga við öll helstu samtökin þar sem STEF og NCB hafa fengið umboð til þess að gæta hér á Íslandi hagsmuna svo að segja allra þeirra tónskálda og textahöfunda sem máli skipta. Á móti gæta erlendu systursamtökin hagsmuna íslenskra tónskálda og textahöfunda erlendis.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


 

efnisyfirlit síðunnar