Sögulegt yfirlit

Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar, STEF, var stofnað hinn 31. janúar 1948 að frumkvæði tónskáldsins Jóns Leifs

Stofnfundur félagsins var jafnframt aðalfundur Tónskáldafélags Íslands og voru þar mættir: Jón Leifs, Páll Ísólfsson, Hallgrímur Helgason, Helgi Pálsson, Sigurður Þórðarson, Friðrik Bjarnason, Árni Thorsteinsson, Jón Nordal, Karl O. Runólfsson og Jón Þórarinsson. Nafngiftin STEF mun vera runnin frá dr. Hallgrími Helgasyni. Aðalmenn í stjórn á þessum fyrsta fundi voru kjörnir Jón Leifs, Hallgrímur Helgason og Helgi Pálsson. Til vara: Páll Ísólfsson, Jón Þórarinsson og Karl Runólfsson. (Þú skalt ekki stela, Rvk 1998.)

STEF er höfundaréttarsamtök sem hefur haft það að markmiði frá upphafi að gæta hagsmuna innlendra og erlendra tónskálda, textahöfunda og annarra tengdra rétthafa á því sviði höfundaréttar.

Í öllum Evrópuríkjum og flestum öðrum ríkjum heims hafa höfundaréttarsamtök á borð við STEF einkarétt til að gera samninga um opinberan flutning á tónverkum og tilheyrandi textum. Fyrirsvarsmenn STEFs hafa frá upphafi verið meðvitaðir um þessa stöðu samtakann og gætt þess að misnota hana ekki gagnvart viðsemjendum sínum. Hefur STEF aðeins í algjörum undantekningartilvikum lagt bann við flutningi tónlistar, þ.e. þegar um ítrekuð og veruleg vanskil hefur verið að ræða af hálfu þeirra aðila sem hana flytja.

Senda grein

Útlit síðu:



banner4
Þetta vefsvæði byggir á Eplica