STEF eru félagasamtök
STEF eru félagasamtök og er stýrt af fulltrúum þeirra sem aðild eiga að samtökunum
STEF eru félagasamtök og er stýrt af fulltrúum þeirra sem aðild eiga að samtökunum. Það eru fyrst og fremst félög tónskálda og textahöfunda, sem fara með stjórn STEFs, en þessi félög eru: Tónskáldafélag Íslands og Félag tónskálda og textahöfunda. Þessi tvö félög velja, hvort um sig, þrjá menn í stjórn STEFs, en að auki velja þeir rétthafar, sem veitt hafa STEFi umboð sitt og standa utan félaganna, einn mann í stjórnina. Félögin tilnefna með sama hætti, hvort um sig, fimm menn í fulltrúaráð STEFs, en rétthafar utan félaganna tilnefna tvo menn í fulltrúaráðið. Fulltrúaráð STEFs fer með æðsta vald í málefnum samtakanna, en stjórn STEFs stýrir samtökunum samkvæmt ákvörðunum fulltrúaráðs og ræður framkvæmdastjóra samtakanna er stýrir daglegum rekstri þeirra.
Hvers vegna er gerður greinarmunur á rétthöfum sem standa innan aðildarfélaganna og utan þeirra?
Ástæðan fyrir því að félög tónskálda og textahöfunda tilnefna flesta af stjórnar- og fulltrúaráðsmönnum STEFs er sú að mikill munur er á einstökum rétthöfum á sviði tónlistar. Sumir hafa aðeins samið eitt lag eða gert einn texta meðan aðrir hafa atvinnu af tónsmíðum og textagerð. Fullgildir félagar í F.T.T. og T.Í. geta aðeins orðið þeir sem hafa verulegra hagsmuna að gæta sem tónskáld og textahöfundar.
Hvernig geta menn gerst félagar í aðildarfélögunum?
Þeir rétthafar, sem áhuga hafa á að ganga í annað hvort félagið, geta fengið upplýsingar um skilyrði félagsaðildar á skrifstofu hvors félags um sig, en allir þeir sem verulegra hagsmuna hafa að gæta eiga þess kost að ganga í annað hvort félagið.
Er eitthvert eftirlit af hálfu hins opinbera með STEFi?
Samkvæmt sérstakri löggildingu frá menntamálaráðuneytinu hefur STEF heimild til þess að innheimta höfundarréttargjöld fyrir flutning á tónlist og tilheyrandi texta, sem verndar nýtur samkvæmt höfundalögum, hvort sem samtökin hafa fengið umboð hlutaðeigandi höfundar eða ekki. Þetta þýðir jafnframt að STEFi er skylt að úthluta því fé, sem innheimtist, og eru það hátt á annað þúsund rétthafar sem STEF úthlutar til á ári hverju.

