STEF og viðskiptavinir samtakanna

Aðild að samtökunum


Félagar í STEFi eru þrenns konar: Þeir sem eru skráðir félagar í F.T.T., þeir sem eru skráðir félagar í T.Í. og þeir sem ekki eru skráðir í þessi tvö félög, en hafa veitt STEFi umboð sitt. Ástæðan fyrir þessu er sú, að aðeins þeir sem hafa verulegra hagsmuna að gæta sem tónskáld og textahöfundar geta orðið fullgildir félagar að aðildarfélögunum tveimur, Félagi tónskálda og textahöfunda og Tónskáldafélagi Íslands.

Þeir sem ekki eru félagar í F.T.T. eða T.Í. en hafa veitt STEFi umboð sitt velja einn mann í stjórn og tvo menn í fulltrúaráðið sem fer með æðsta vald samkvæmt Samþykktum STEFs.


Verkefni STEFs eru einkum þrenns konar:


Í fyrsta lagi beitir STEF sér fyrir að varðveita og efla höfundarétt á sviði tónlistar. Mótar STEF stefnu á þessu sviði sem félagar í samtökunum eru bundnir af.

Í öðru lagi sér STEF um að innheimta höfundaréttargjöld fyrir flutning tónlistar þar sem hún er flutt opinberlega. Hefur STEF gert samninga við suma þá sem tónlist flytja, eins og stærstu útvarpsstöðvarnar, en hjá öðrum innheimtir STEF gjöldin samkvæmt gjaldskrá. Þetta er fyrirferðarmikill þáttur í starfi samtakanna. Þeir sem greiða höfundarréttargjöld til STEFs, skipta mörgum hundruðum.

Þriðja meginverkefni STEFs er að úthluta því, sem innheimst hefur, til hlutaðeigandi rétthafa, eftir að kostnaður við starfsemi samtakanna hefur verið dreginn frá. Úthlutun fer fram á grundvelli upplýsinga um hvaða verk hafa verið flutt, t.d. í útvarpi, og er leitast við að hafa hana sem nákvæmasta, þó þannig að kostnaður við að afla upplýsinga og skrá þær verði ekki óheyrilega hár svo að sem mest komi til skipta milli rétthafa þegar upp er staðið.

Senda grein


Útlit síðu:

banner4
Þetta vefsvæði byggir á Eplica