Rekstur - rekstrarkostnaður

Í 6. grein samþykkta STEFs er kveðið á um meðferð fjármála samtakanna. Þar kemur fram að fyrst skuli greiða opinber gjöld en síðan allan rekstrarkostnað samtakanna, en það sem eftir verður skiptist með þeim sem eiga flutningsrétt á verkum sem samtökin innheimta gjöld fyrir. Auk þess má greiða allt að 15% til Tónmenntasjóðs I, eftir nánari ákvörðun aðalfundar fulltrúaráðsins.

Reikningar samtakanna eru lagðir fyrir aðalfund einu sinni á ári, og er hann haldinn í maí. Aðalfund situr fulltrúaráð STEFs (stjórn og fulltrúaráð), auk framkvæmdastjóra, skrifstofustjóra, innheimtustjóra og löggiltum endurskoðanda sem sitja fundinn án tillögu- og atkvæðisréttar.

Stærsti liðurinn í rekstrarkostnaði samtakanna á árinu 2003 voru, eins og oftast endranær, laun og launatengd gjöld en þar á eftir kom ýmis rekstrarkostnaður, m.a. kostnaður við nýtt tölvukerfi samtakanna, og innheimtukostnaður.

Fastir starfsmenn samtakanna eru:


Eiríkur Tómasson prófessor, framkvæmdastjóri, í 50% starfi,
Jenný Davíðsdóttir, skrifstofustjóri og útibússtjóri NCB, í 100% starfi,
Sigríður Guðjónsdóttir, gjaldkeri, í 100% starfi,
Bjarney Gísladóttir, skrifstofumaður, í 100% starfi,
Magnús Guðmundsson, skrásetjari, tölvuvinnsla, í 60% starfi
Guðný Rósa Gísladóttir, bókari og starfsmaður NCB, í 50% starfi.

Markaðs- og innheimtustjóri samtakanna er Gunnar Stefánsson.

Að ræstingu og viðhaldi húseignarinnar Laufásvegi 40 koma ýmsir aðilar.

Að sérverkefnum koma ýmsir aðilar, s.s. tölvukerfum, mati og flokkun tónverka o.fl. o.fl.

Skrifstofa STEFs er til húsa að Laufásvegi 40 í Reykjavík og er opin daglega frá kl. 10-12 og 13-15.

Senda grein


Útlit síðu:

banner4
Þetta vefsvæði byggir á Eplica