STEF
Hér á Íslandi er það Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar, skammstafað STEF sem gætir hagsmuna tónskálda og höfunda texta að tónlist á sviði flutningsréttar, en Nordisk Copyright Bureau, skammstafað NCB, sem gætir hagsmunanna á sviði upptökuréttar. Þessi hagsmunagæsla er alþjóðleg.
Höfundaréttarsamtök á borð við STEF og NCB er að finna í flestum löndum heims og hafa bæði STEF og NCB gert gagnkvæma samninga við öll helstu samtökin þar sem STEF og NCB hafa fengið umboð til þess að gæta hér á Íslandi hagsmuna svo að segja allra þeirra tónskálda og textahöfunda sem máli skipta. Á móti gæta erlendu systursamtökin hagsmuna íslenskra tónskálda og textahöfunda erlendis.

