Hátalari

STEF

Í flestum löndum heims hafa verið stofnuð höfundaréttarsamtök sem sjá um að gæta hagsmuna tónskálda og textahöfunda, hvort sem um er að ræða flutningsréttindi, þ.e. flutning á verkum í útvarpi (hljóðvarpi og sjónvarpi), á tónleikum, dansleikjum eða veitingastöðum, í verslunum eða kvikmyndahúsum, á fjölmennum vinnustöðum o.s.frv., eða upptökuréttindi, svo sem upptöku á hljómplötur, geisladiska, hljóðbönd eða myndbönd.

Hér á Íslandi er það Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar, skammstafað STEF sem gætir hagsmuna tónskálda og höfunda texta að tónlist á sviði flutningsréttar, en Nordisk Copyright Bureau, skammstafað NCB, sem gætir hagsmunanna á sviði upptökuréttar. Þessi hagsmunagæsla er alþjóðleg.

Höfundaréttarsamtök á borð við STEF og NCB er að finna í flestum löndum heims og hafa bæði STEF og NCB gert gagnkvæma samninga við öll helstu samtökin þar sem STEF og NCB hafa fengið umboð til þess að gæta hér á Íslandi hagsmuna svo að segja allra þeirra tónskálda og textahöfunda sem máli skipta. Á móti gæta erlendu systursamtökin hagsmuna íslenskra tónskálda og textahöfunda erlendis.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


 

efnisyfirlit síðunnar