Flokkun tónverka

Sækja Flokkun tónverka í PDF.

Á aðalfundi STEFs 1995 bættist við reglur um flokkun tónverka ný athugasemd, D.
Hér eru allar athugasemdir við flokkunina teknar upp í einu lagi:

Athugasemdir:

A.

Einstökum þætti úr stærra tónverki, sem umritaður er fyrir önnur hljóðfæri, eða fluttur sem sjálfstætt tónverk, skal skipa í þann flokk sem þátturinn á heima í, samkvæmt eðli sínu.


B.

Brot úr stærra verki skal halda þeirri flokkun og stigsetningu sem verkinu hefur verið ákveðið, þegar það er flutt í heild sinni, að því tilskildu að brotið falli ekki undir lið A.


C.

Úrvinnslu/útsetningu/umritun skal skipa í þann flokk og stigsetningu sem verkið tilheyrir samkvæmt hinu nýja eðli sínu.


D.

Ef tónverk er flokkað í flokk A eða B skal margföldunarstuðull texta vera 6 (flokkur A) eða 10 (flokkur B).


Ef tónverk er flokkað í flokk C, D eða E skal margföldunarstuðull texta vera 10.


Sé texti einungis við hluta tónverks skal vægi hans minnka hlutfallslega.


Afleiðingar af athugasemd D við skráningu tónverks í tölvu


Í flokki A eru bæði tónlist og texti með margföldunarstuðulinn 6. Engin breyting.


Í flokki B eru bæði tónlist og texti með margföldunarstuðulinn 10. Engin breyting.


Í flokki C er tónlist með margföldunarstuðulinn 15 og texti með 10.

Eldri punktaútreikningur var: 15 x tími x heildarhlutur (12)


Breyttur punktareikningur verður:

(15 x tími x hlutur tónskálds) + (10 x tími x hlutur textahöfundar)


(15 x tími x 8) + (10 x tími x 4). Út koma færri punktar. Heildarpunktafjöldi skv. fyrri útreikningi tekinn og þessi tala dregin frá.


Mismuninum er bætt á tónskáld og samtals skipt sömu upphæð og upphaflega.


Hlutur tónskálds fer úr 66,7 í 78% og hlutur textahöfundar úr 33,3 í 22%.


Áhrif tímalengdar texta á skiptingu C-flokkur 15/10


Textatími sem hlutfall
af heild (%)

0

10

20

30

40

50

60

70

80

90

100

Skiptihlutfall tónlistar
í %

100

98

96

93

91

89

87

84

82

80

78

Skiptihlutfall texta í %

0

2

4

7

9

11

13

16

18

20

22



Í flokki D er tónlist með margföldunarstuðulinn 20 og texti með 10.

Eldri punktaútreikningur var: 20 x tími x heildarhlutur (12)


Breyttur punktareikningur verður:

(20 x tími x hlutur tónskálds) + (10 x tími x hlutur textahöfundar)


(20 x tími x 8) + (10 x tími x 4). Út koma færri punktar. Heildarpunktafjöldi skv. fyrri útreikningi tekinn og þessi tala dregin frá.


Mismuninum er bætt á tónskáld og samtals skipt í sömu upphæð og upphaflega.


Hlutur tónskálds fer úr 66,7% í 83% og hlutur textahöfundar úr 33,3% í 17%.



Áhrif tímalengdar texta á skiptingu D-flokkur 20/10



Textatími sem hlutfall
af heild (%)

0

10

20

30

40

50

60

70

80

90

100

Skiptihlutfall tónlistar í %

100

98

97

95

93

92

90

88

87

85

83

Skiptihlutfall texta í %

0

2

3

5

7

8

10

12

13

15

17

 

 

Í flokki E er tónlist með margföldunarstuðulinn 24 og texti með 10.


Eldri punktaútreikningur var: 24 x tími x heildarhlutur (12)


Breyttur punktareikningur verður:

(24 x tími x hlutur tónskálds) + (10 x tími x hlutur textahöfundar)


(24 x tími x 8) + (10 x tími x 4). Út koma færri punktar. Heildarpunktafjöldi skv. fyrri útreikningi tekinn og þessi tala dregin frá.


Mismuninum er bætt á tónskáld og samtals skipt í sömu upphæð og upphaflega.


Hlutur tónskálds fer úr 66,7% í 86,11% og hlutur textahöfundar úr 33,3% í 13,89%.




Áhrif tímalengdar texta á skiptingu E-flokkur 24/10

Textatími sem hlutfall af
heild (%)

0

10

20

30

40

50

60

70

80

90

100

Skiptihlutfall tónlistar í %

100

99

97

96

94

93

92

90

89

87

86

Skiptihlutfall texta í %

0

1

3

4

6

7

8

10

11

13

Senda grein


Útlit síðu:

banner3
Þetta vefsvæði byggir á Eplica