Úthlutunarreglur STEFs

um úthlutun á þóknun fyrir opinberan flutning tónverka

  

1.     grein

Höfundaréttargreiðslum þeim, sem Sambandi tónskálda og eigenda flutningsréttar (STEFi) ber að greiða tónskáldum, textahöfundum og öðrum rétthöfum fyrir flutning tónverka, skal úthlutað samkvæmt höfundalögum og þeim reglum sem hér fara á eftir.

 

2.     grein – Almennar meginreglur um úthlutun

Höfundaréttargjöldum sem STEF innheimtir fyrir flutning tónverka (að frádregnum rekstrarkostnaði og öðrum kostnaði við starfsemi samtakanna) að meðtöldu framlagi í Tónmenntasjóð til menningarmála, skal úthlutað til rétthafa eftir á, miðað við flutning tónverka þeirra á því ári sem gjöldin falla til.

Tillit skal tekið til eftirtalinna sjónarmiða við úthlutun á höfundaréttargreiðslum eftir því sem við á:

1.      Kostnaðar við innheimtu höfundaréttargjalda á viðkomandi sviði, þannig að úthlutað sé tiltölulega hærri greiðslum eftir því sem sá kostnaður er lægri.

2.      Hlutfalls verndaðrar tónlistar af því efni, sem flutt er, til dæmis í dagskrá útvarpsstöðva eða á tónleikum, þannig að hærri greiðslum sé úthlutað eftir því sem hlutfallið eykst.

 

3.     grein – Framlag í Tónmenntasjóð STEFs til menningarmála

Framlag í Tónmenntasjóð STEFs til menningarmála má nema allt að 10% af innheimtum höfundaréttargjöldum, að frádregnum kostnaði, eftir ákvörðun aðalfundar samtakanna hverju sinni.

 

4.     grein – Úthlutunarflokkar

Höfundarréttargreiðslum skv. 2. grein skal úthlutað í sem mestu samræmi við þau gjöld sem innheimt eru fyrir flutning hvers tónverks um sig. Úthlutun höfundaréttargreiðslna tekur mið af eftirtöldum flokkum, eins og nánar er kveðið á um í 5. grein: 

1.      Tónlist í útvarpi, þ.e. í hljóðvarpi og sjónvarpi.

2.      Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

3.      Aðrir sinfónískir tónleikar en þeir sem tilgreindir eru í 2. tl. svo og kammer- og kórtónleikar.

4.      Vísna-, djass- og popptónleikar

5.      Dansleikir og aðrar samkomur en tónleikar.

6.      Bakgrunnstónlist, svo sem á veitingastöðum og í verslunum.

7.      Tónlist við kirkjulegar athafnir.

8.      Tónlist í kvikmyndahúsum og á kvikmyndasýningum.

9.      Tónlist í leikhúsum og á leiksýningum.

10.  Tónlist á Internetinu.

 

5.     grein – Úthlutun byggist á tiltækum upplýsingum

Úthlutun höfundaréttargreiðslna miðast við þær upplýsingar um flutning tónverka  sem STEFi berast eða samtökin afla með öðrum hætti. Ber útvarps- og sjónvarpsstöðvum að láta STEFi í té ítarlegar tónlistarskýrslur yfir allar útsendingar. Þá ber tónleikahöldurum að láta STEFi í té skýrslur yfir lifandi tónlistarflutning, leikhúsum að skila inn skýrslum fyrir sviðstónlist, tónlistarveitum að senda inn skýrslur yfir vefstreymi og niðurhal. Upplýsinga er aflað um tónlist í kvikmyndahúsum, eins og lýst er nánar í grein 5.1 – 5.5. Af hagkvæmnis- og kostnaðarástæðum er hins vegar ekki gerð krafa um upplýsingar fluttra tónverka í öllum tilvikum.

Meginreglan varðandi úthlutun höfundaréttargreiðslna vegna tónlistarflutnings, þar sem STEF fær litlar sem engar upplýsingar um flutning tónverka  líkt og í flokki 5 og 6, er að úthlutað er í samræmi við upplýsingar um flutning tónlistar í útvarpi. Ef unnt er að afla frekari upplýsinga um flutning tónlistar sem fellur innan þessara flokka, án óeðlilegs kostnaðar, með því að nota úrtak af fluttum tónverkum, má einnig byggja úthlutun í þessum flokkum á slíkum upplýsingum. Úrtök er til dæmis hægt að fá hjá hljómsveitum sem flytja tónlist á dansleikjum og öðrum samkomum og hjá tónlistarveitum sem streyma tónlist til verslana og veitingahúsa. Ákvarðanir um úrtakanotkun skulu teknar af stjórn  STEFs. Ef upplýsinga hefur verið aflað með úrtaki, er miðað við slíkar upplýsingar til helmings á móti upplýsingum um flutta tónlist í útvarpi. Úthlutun í þessum tilvikum skal vera í eins nákvæmu samræmi við raunverulega tónlistarnotkun og unnt er. Úrtök skulu valin handahófskennt og leitast við að tryggja að rétthöfum sé ekki mismunað umfram það sem slík úthlutunaraðferð hefur í för með sér. 

 

5.1  Hljóðvarp og sjónvarp

Úthlutun höfundaréttargreiðslna fyrir flutning í hljóðvarpi og sjónvarpi byggist á þeim höfundaréttargjöldum sem innheimt eru af sérhverri hljóðvarps- og sjónvarpsstöð og skýrslum yfir opinberan flutning tónlistar samkvæmt samningum milli STEFs og viðkomandi fyrirtækis. Úthluta skal sérstaklega fyrir flutning á hverri og einni útvarps- eða sjónvarpsstöð og, eftir því sem við á,  hverri og einni útvarps- og sjónvarpsrás. Í þeim tilfellum að útvarps- eða sjónvarpsútsendingar eru innan takmarkaðs landfræðilegs svæðis og innheimt höfundarréttargjöld óveruleg, skal úthlutunin byggjast á tónlistarskýrslum sem aðrar stöðvar af svipuðum toga láta í té.

 

5.2  Lifandi flutningur

Úthlutun höfundaréttargreiðslna fyrir lifandi flutning tónlistar byggist á innheimtu höfundaréttargjalda af hverjum tónleikum fyrir sig og þeim tónlistarskýrslum sem tónleikahaldarar og/eða viðkomandi listamenn eða rétthafar skila til STEFs. Í þeim tilvikum sem STEF hefur undirritað samning við tónleikastað sem greiðir fasta fjárhæð höfundaréttargjalds á ári og höfundaréttargjöld af hverjum atburði fyrir sig eru óveruleg, byggist úthlutunin á tónlistarskýrslum sem STEFi berast um flutning tónlistar á viðkomandi stað.

Sé um að ræða tónleika sem kenndir eru við eina hljómsveit eða flytjanda og áheyrendur eru fleiri en 1.000 skulu 90% höfundaréttargreiðslna af tónleikunum koma í hlut rétthafa tónlistar sem flutt er af viðkomandi hljómsveit eða flytjanda. Rétthafar tónlistar sem flutt er af öðrum hljómsveitum eða flytjendum, svo sem „upphitunarhljómsveitum“, fá í sinn hlut 10% af höfundaréttargreiðslna vegna tónleikanna.

 

5.3  Sviðstónlist

Úthlutun fyrir sviðstónlist byggist á höfundaréttargjöldum sem innheimt eru af hverju leikhúsi fyrir sig eða þeim sem setur upp leikverk og þeim tónlistarskýrslum sem leikhúsunum eða öðrum þeim sem setja upp leikverk ber að láta STEFi í té samkvæmt samningum milli STEFs og viðkomandi aðila.

 

5.4  Kvikmyndatónlist

Úthlutun fyrir kvikmyndatónlist sem flutt er í kvikmyndahúsum byggist á upplýsingum um aðgöngumiðasölu. Úthlutun fyrir kvikmyndir sem sýndar eru í flugvélum eða á öðrum opinberum vettvangi byggist á tónlistarskýrslum sem rekstraraðilar láta STEFi í té.

 

5.5  Internetið

Úthlutun fyrir opinberan tónlistarflutning á Internetinu byggist á höfundaréttargjöldum sem innheimt eru af sérhverjum þjónustuaðila á Internetinu og tónlistarskýrslum frá sama aðila. Höfundaréttargreiðslum vegna niðurhals tónlistar af Internetinu (upptökuréttur) er úthlutað af Norrænu höfundarréttaskrifstofunni, Nordic Copyright Bureau.

 

6.     grein – Skráning tónverka

Tónverk eru skráð í gagnagrunn STEFs samkvæmt þeim upplýsingum um tónverkið sem fram koma á tilkynningu um verk og viðkomandi rétthafar láta STEFi í té. Tónverk er aðeins hæft til úthlutunar höfundaréttargreiðslna ef viðeigandi upplýsingar um tónverkið hafa verið skráðar. Meginreglan er að einungis er tekið á móti einni tilkynningu um skráningu fyrir hvert verk og skal tilkynningin vera réttilega undirrituð af öllum rétthöfum. Sérstök skráning skal gerð fyrir hverja útgáfu tónverksins.

STEFi er heimilt að skrá verk og úthluta samkvæmt skráningunni afturvirkt í allt að fjögur ár, ef rétthafi getur sannað á fullnægjandi hátt að tónverkið hafi ekki verið skráð vegna vanrækslu af hálfu annars rétthafa eða vegna ytri aðstæðna.

Skráningu tónverks má aðeins breyta með nýrri tilkynningu um verk sem er undirrituð af öllum þeim sem undirrituðu upphaflegu tilkynninguna.

Höfundaréttur á verki er óháður skráningu STEFs á tónverki.

STEF axlar enga ábyrgð og veitir enga tryggingu gegn skaða sem aðili getur orðið fyrir í tengslum við úthlutun höfundaréttargreiðslna eða við verndun á höfundarétti sem rekja má til rangra eða ófullnægjandi tilkynninga um verk.

Rétthafar mega aðeins skoða skráningu á sínum eigin verkum.

 

7.     grein – Skipting á höfundaréttargreiðslum milli rétthafa

Greiðslum á höfundaréttargreiðslum fyrir flutning tónverks, ásamt höfundaréttargreiðslum fyrir upptökuréttindi skal skipt í allt að 12 jafna hluta. Skulu rétthafar hljóta hver um sig tiltekinn hluta af höfundaréttargreiðslum eins og hér greinir, nema um annað hafi verið samið:

                                                                                                          EININGAR      

                                                                                   Tónskáld        Útsetjari    Textahöf.

  Tónverk án texta 12 - -
  Tónverk með texta, ef textahöfundur er óþekktur eða nýtur ekki höfundarréttarverndar   8 - -
  Útsett tónverk án texta 10 2 -
  Útsett tónverk með texta, ef textahöfundur er óþekktur eða nýtur ekki höfundarréttarverndar   6 2 -
  Tónverk samið við eldri texta   8 - 4
  Útsett tónverk samið við eldri texta   6 2 4
  Útsett tónverk án texta, ef höfundur er óþekktur eða nýtur ekki höfundarréttarverndar   - 4 -
  Texti með tónverki, ef höfundur er óþekktur eða nýtur ekki höfundarréttarverndar   - -

6

 

Texti við útsett tónverk, ef höfundur er óþekktur eða nýtur ekki höfundarréttarverndar   - 2 6
Tónverk og texti, samið samtímis eða texti saminn við eldra tónverk*   6 - 6
Tónverk og texti, samið samtímis, útsett   4 2 6

 

*Þegar tónverk og texti eru samin samtímis skulu tónskáld og textahöfundur og útsetjari, eftir því sem við á, tilkynna STEFi um það á þar til gerðum eyðublöðum og tilgreina skiptinguna.

 

8.     grein – Úthlutun höfundaréttargreiðslna til meðlima

annarra höfundaréttarsamtaka

Höfundaréttargreiðslum til rétthafa, sem aðild eiga að systursamtökum STEFs erlendis, skal úthlutað fyrir milligöngu sænsku systursamtakanna, STIM, í samræmi við gagnkvæma samninga sem STEF hefur gert við viðkomandi samtök. Við þá úthlutun skal fylgt sömu reglum og við úthlutun til rétthafa sem aðild eiga að STEFi, eins og tilgreint er í greinum 2 til 7 hér að ofan. Úthlutun til erlendra rétthafa skal í það minnsta eiga sér stað einu sinni á ári, á sama hátt og úthlutað er til rétthafa sem aðild eiga að að STEFi, og skal stjórn STEFs ákveða dagsetningu úthlutunarinnar.

 

9. grein – Aðrar úthlutanir

 

9.1  Úthlutun höfundaréttargreiðslna fyrir upptökuréttindi

Norræna höfundaréttarskrifstofan, Nordisk Copyright Bureau (NBC), annast innheimtu og úthlutun höfundaréttargreiðslna fyrir upptökurétt til rétthafa innan STEFs, samkvæmt samningi milli STEFs og NCB.

 

9.2 Úthlutun höfundaréttargreiðslna frá öðrum höfundaréttarsamtökum

Erlend höfundaréttarsamtök sem annast hagsmunagæslu fyrir rétthafa innan STEFs, samkvæmt gagnkvæmum samningum, annast úthlutun höfundaréttargreiðslna til STEFs fyrir íslenska tónlist sem flutt er í þeirra umdæmi. Tímasetning þessara úthlutana er mismunandi eftir höfundaréttarsamtökum

 

9.3  Óþekkt tónverk

STEF gerir sitt ýtrasta til að bera kennsl á tónverk sem tilkynnt er um flutning á. Þetta er gert með því að bera saman skýrslur við gagnagrunn STEFs, bæði sjálfvirkt og handvirkt. Ef tónverkið er enn óþekkt tekur eftirfarandi ferli við:

a.       Ef höfundurinn er þekktur er haft samband við hann og skráning á tónverkinu á sér stað samkvæmt tilkynningu um verk.

b.      Tónverkið er borið handvirkt saman við Nord-Doc gagnagrunninn og aðrar upplýsingar á Internetinu.

c.       Í því tilviki að engin samsvörun finnst, er óþekkta tónverkinu bætt við lista af óþekktum tónverkum sem er yfirfarinn ársfjórðungslega, þ.e. fyrir sérhverja úthlutun. Öllum tónverkum er bætt við listann án skilyrða um lágmarks höfundaréttargreiðslur. 

Höfundaréttargreiðslum fyrir notkun á óþekktum tónverkum og höfundaréttargreiðslum sem haldið er eftir vegna lágmarksreglunnar sem tilgreind er í 10. grein,  er úthlutað hlutfallslega til rétthafa þekktra tónverka.

 

10. grein – Útborgun höfundaréttargreiðslna

Úthlutun höfundaréttargreiðslna á sér stað í það minnsta einu sinni á ári og er dagsetning úthlutunar ákveðin af stjórn STEFs.

 

Höfundaréttargreiðslur skulu lagðar inn á bankareikning samkvæmt fyrirmælum viðkomandi rétthafa. Sérhver rétthafi ber ábyrgð á að tilkynna STEFi um breytingar á bankaupplýsingum sínum.

 

Ef höfundaréttargreiðslur til rétthafa ná ekki því lágmarki sem stjórn STEFs ákveður, skal bæta þeim við greiðslur næsta árs í allt að fjögur ár, en að þeim tíma liðnum fyrnast þær.

 

Höfundaréttargreiðslur eru skattlagðar samkvæmt lögum um tekjuskatt áður en unnt er að greiða þær viðkomandi rétthafa.

 

Stjórn STEFs getur í hagræðingarskyni ákveðið að úthluta greiðslum vegna opinbers flutnings tiltekins tónverks eða tónverka til takmarkaðs hóps rétthafa. Sé um að ræða fleiri en einn erfingja tónskálds eða textahöfundar, skal greiðslum úthlutað til sameiginlegs umboðsmanns þeirra.

 

11.            grein – Athugasemdir við úthlutun

Innan þriggja mánaða frá þeirri dagsetningu sem rétthöfum berst tilkynning um úthlutun, geta rétthafar gert athugasemdir við úthlutunina samkvæmt þessum reglum, en þó aldrei síðar en innan fjögurra ára frá því að úthlutun átti sér stað. STEF skal halda eftir viðeigandi fjárhæð af árstekjum sínum til þess að mæta kröfum í samræmi við þessa grein.

 

12.            grein – Ágreiningur

Stjórn STEFs skal kveða upp úrskurð í öllum ágreiningi sem varða túlkun á þessum reglum. Ákvörðun stjórnarinnar má vísa til fulltrúaráðs STEFs til lokaniðurstöðu.

 

13.            grein – Gildistími

Reglur þessar, sem koma í stað eldri úthlutunarreglna frá 7. maí 2011, öðlast gildi hinn 1. janúar 2012 og skulu gilda um úthlutun tekna sem aflað er frá og með þeirri dagsetningu.

 

Þannig samþykkt af fulltrúaráði STEFs hinn 13.  desember 2011.

 

  

 

VIÐAUKI 1

Úthlutun endurgjalds vegna upptöku verka til einkanota

Í samræmi við höfundalög sem skilgreina rétt á endurgjaldi vegna upptöku verka til einkanota sem sui generis, gilda eftirfarandi reglur um úthlutun endurgjalds sem STEF veitir viðtöku frá IHM, Innheimtumiðstöð gjalda, fyrir hönd tónskálda, textahöfunda og annarra rétthafa á tónverkum.

 

1.      Samkvæmt höfundalögum, eiga einungis rétthafar þeirra tónverka, sem hafa verið send út í útvarpi eða sjónvarpi, eða hljóðrituð í hljóðrænu- eða sjónrænu formi til útgáfu, rétt til endurgjaldsins

2.      Markmiðið við úthlutun endurgjaldsins er að bæta höfundum eins nákvæmlega og unnt er tjón vegna upptöku verka þeirra til einkanota sem á sér stað á Íslandi ár hvert.

3.      Greiðslur til rétthafa, sem eru aðilar að STEFi, fara í gegnum STEF og byggjast á úthlutun höfundaréttargreiðslna samtakanna vegna opinbers flutnings og hljóðritunar til útgáfu verka á Íslandi eins og stjórn STEFs ákveður á hverjum tíma.

 4.      Greiðslur til rétthafa, sem eru aðilar að erlendum höfundaréttarsamtökum, fara í  gegnum viðkomandi samtök samkvæmt ákvörðun stjórnar STEFs ár hvert. Úthlutun höfundaréttargreiðslna til erlendra samtaka byggist á hlutfalli tónverka rétthafa þeirra, sem hafa verið flutt og hljóðrituð til útgáfu á Íslandi, í samanburði við önnur tónverk, samkvæmt gagnkvæmum samningum milli STEFs og viðkomandi samtaka. Samkvæmt höfundalögum skal einungis úthlutað til rétthafa sem hafa búsetu í löndum með sambærilegar reglur um endurgjald vegna upptöku verka til einkanota.

 

Greiðslum frá öðrum höfundaréttarsamtökum sem berast til STEFs, eða Norrænu höfundarréttarskrifstofunnar NCB, samkvæmt gagnkvæmum samningum milli STEFs og viðkomandi samtaka, er úthlutað til aðila STEFs í hlutfalli við hlutdeild þeirra í höfundaréttargreiðslum fyrir flutningsrétt og upptökurétt,  án þess að nokkur kostnaður sé dreginn frá slíkum greiðslum.

 

Senda grein

Útlit síðu:



banner3
Þetta vefsvæði byggir á Eplica