IMX kynning

"Meikaðu það á netinu!" – námskeið um dreifingu, kynningu og markaðssetningu á tónlist á vefnum

IMX/ÚTÓN (www.icelandmusic.is) býður íslensku tónlistarfólki og þeim sem starfa við að koma tónlist á framfæri til námskeiðs um dreifingu, kynningu og markaðssetningu á tónlist á vefnum þriðjudaginn 2. september nk., kl. 17 í Hressingarskálanum við Austurstræti. Kennari námskeiðsins er enginn annar en Denzyl Feigelson, en sá er lifandi goðsögn í heimi markaðssetningar og dreifingar tónlistar á vefnum og hefur frá upphafi verið þar mótandi afl. Hér er því einstakt tækifæri til að kynnast þessum mesta vaxtarbroddi tónlistargeirans nánar, frá manni sem hefur verið viðloðandi hann allt frá upphafi.

Denzyl Feigelson er Suður-Afríkumaður og er menntaður í tónlistarmeðferð og tónlist almennt. Hann hefur á sínum langa ferli starfað með nokkrum af helstu tónlistarmönnum heims og átti m.a. stóran þátt í velgengni plötu Paul Simon, Graceland. Hann hefur einnig verið umboðsmaður („manager") listamanna á borð við Ladysmith Black Mambazo, Kenny Loggins, Luther Vandross, Gipsy Kings, Alice Cooper og Miriam Makemba.

Denzyl hefur verið áhrifamikill í heimi stafrænnar markaðssetningar frá upphafi. Árið 1995 stofnaði hann fyrirtækið AWAL ("Artists Without A Label"), sem hefur notið mikillar velgengni síðan og hefur m.a. starfað með íslensku sveitinni Bloodgroup (og sömuleiðis átt stóran þátt í velgengni listamanna á borð við Arctic Monkeys, Editors, Klaxons og Kate Havnevik).

Á tíunda áratugnum var hann einnig ráðgjafi fyrir Mp3.com, licencemusic.com og artistone.com, auk þess sem hann var ráðgjafi fyrir stóru plötufyrirtækin þegar þau stigu sín fyrstu skref í netvæðingu. Einnig starfaði hann á þessum tíma með fyrirtækjum á borð við Ralph Lauren, Apple, Coach, Jeep, Northwest Airlines, EMI og Coca Cola gegnum framsalsfyrirtæki sem hann stofnaði.

Frá árinu 2001 hefur Denzyl verið sérlegur ráðgjafi Apple í öllum málum er varða tónlistariðnaðinn, m.a. leyfismálum starfrænnar tónlistar, skapandi málefnum, sölu og viðburðaskipulagi. Hann þykir hafa spilað stórt hlutverk í velgengni iTunes tónlistarverslunarinnar og var yfir iTunes versluninni í Bretlandi allt frá miðju ári 2004 (en hann sá m.a. um að velja alla tónlist sem sett er í forgrunn þar, auk þess sem hann hefur farið fyrir herferðum til að auka sölu, skilja og spá fyrir um tískusveiflur og hugað að vexti ungra listamanna þar). Hann stóð einnig að tónlistarhátíðinni iTunes Festival og er nú yfir tónleikadeild iTunes í Evrópu. Hann er einnig ráðgjafi Cokemusic og annarra stórra vörumerkja sem vilja marka sér spor í alþjóðlega tónlistarbransanum. Nýverið var Denzyl skipaður sérlegur tónlistarráðanautur HM í knattspyrnu 2012, sem fram fer í Suður Afríku.

Á námskeiðinu mun Denzyl ásamt aðstoðarmönnum sínum deila allra nýjustu kunnáttu og verkfærum sem tónlistarmenn geta notað sér til þess að halda utan um eigin feril og stuðla að velgengni í hinu nýja alþjóðlega umhverfi tónlistarmannsins. Eins og hann orðar það sjálfur:

"Þema dagsins verður að deila nýjustu þekkingu og tólum sem listamenn þurfa til þess að komast af og blómstra í hinu nýja hagkerfi tónlistarinnar."

Námskeiðið mun fara fram í fundarsal Hressingarskálans við Austurstræti, en því er ætlað að standa frá kl. 17-21 þriðjudaginn 2. september.

Námskeiðsgjaldi er haldið í lágmarki, en það eru kr. 5.000 kr. fyrir félaga í FÍH, FTT, FT og FÍT, 10.000 fyrir aðra. Þar sem húsrými er takmarkað eru áhugasamir hvattir til þess að skrá sig sem fyrst með því að senda póst á netfangið greta@utflutningsrad.is eða hringja í síma 511-4000.

Nánari upplýsingar veitir Anna Hildur Hildibrandsdóttir í síma 824 4371

Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


 

efnisyfirlit síðunnar