Umboð

Æskilegt er að þeir sem samið hafa tónverk eða gert texta við tónlist, veiti STEFi umboð sitt og gerist þannig félagar í samtökunum. Með því móti er tryggt að hagsmuna hlutaðeigandi tónskálds og/eða textahöfundar sé gætt, eftir því sem kostur er.

Þeir sem vilja skrá sig í STEF og veita því umboð sitt geta annað hvort:

a) komið á skrifstofuna og gengið frá skráningu og umboði og fengið afhentar Samþykktir STEFs.


b) látið skrá sig símleiðis og fengið sendar samþykktirnar og umboð sem þeir síðan senda undirritað til baka á skrifstofuna.

c) sent netpóst á bjarney@stef.is og beðið um skráningu. Nafn, kennitala og heimilisfang eru lágmarksupplýsingar ásamt tilkynningu um a.m.k. eitt verk eftir viðkomandi. Símanúmer og netfang eru einnig vel þegin. Ef óskað er eftir að greiðslur verði lagðar beint inn á bankareikning þurfa að fylgja upplýsingar um banka- og reikningsnúmer. Við sendum óútfyllt Umboð sem þarf að senda undirritað til STEFs og fylgja Samþykktir samtakanna með. Þessi gögn má einnig nálgast hér.

Hvað felst í umboðinu til STEFs?

Með umboðinu er STEFi veitt einkaumboð til þess að gæta hagsmuna hlutaðeigandi tónskálds eða textahöfundar, þ. á m. til þess að framselja höfundarréttinn. Þetta þýðir m.ö.o. að höfundur getur ekki sjálfur ráðstafað höfundarrétti sínum nema með samþykki STEFs. Þannig getur höfundur ekki þótt hann flytji aðeins eigin verk á tónleikum eða dansleikjum þegið greiðslu fyrir það, heldur verður tónleikahaldarinn að greiða höfundaréttargjöld til STEFs sem aftur sér um að úthluta höfundinum þá þóknun sem honum ber. Þetta er gert til þess að vernda einstaka höfunda fyrir ásælni þeirra sem vilja fá að nota tónlist og tilheyrandi texta fyrir lítið sem ekkert. Sá, sem veitt hefur STEFi umboð sitt, ræður því eftir sem áður hvort verk eftir hann er flutt opinberlega eða tekið upp á hljómplötu o.s.frv. Hafi höfundur leyft að verk sé flutt opinberlega eða tekið upp verður hann aftur á móti að sætta sig við að aðrir geti flutt verkið eða tekið það upp, þó samkvæmt leyfi STEFs eða ncb hverju sinni.

Er hægt að ráðstafa höfundarétti án samráðs við STEF?

Það hefur komið hvað eftir annað í ljós að þeir, sem ráðstafað hafa réttindum sínum án samráðs við STEF, hafa afsalað sér mikilvægum réttindum og jafnframt orðið af umtalsverðum fjárhæðum.

Þess vegna er áríðandi að tónskáld og textahöfundar veiti STEFi umboð sitt og ráðstafi ekki höfundarétti sínum, t.d. með samningum við forleggjara (publishers), nema í samráði við samtökin.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


 

efnisyfirlit síðunnar