Tónskáldasjóður Ríkisútvarpsins
Meginmarkmið sjóðsins er að veita styrki til tónskálda til að semja metnaðarfull tónverk í stærri formum, svo sem sinfóníuverk, kammerverk, óperur og söngleiki. Í stjórn sjóðsins eiga sæti útvarpsstjóri, sem er formaður hennar, fulltrúi STEFs og einn fulltrúi, tilnefndur af stjórn Tónskáldafélags Íslands. Styrkir úr sjóðnum eru veittir á grundvelli umsókna.

