Styrkir - tónmenntasjóðirnir
Umsóknir um styrki úr Nótnasjóði og Hljóðritasjóði
Umsóknir um styrki úr Nótnasjóði og Hljóðritasjóði
Samkvæmt nýjum reglum um þessa tvo sjóði tilkynnist hér með að frestur til að sækja um styrki úr sjóðunum er til 10. september 2010. Umsóknir skulu sendar skrifstofu STEFs að Laufásvegi 40, 101 Reykjavík, eða í tölvupósti á netfangið info@stef.is, merktar hvorum sjóði um sig. Í umsókn skal koma fram hver er tilgangur styrkumsóknar og kostnaðar- og tímaáætlun vegna þess verkefnis sem um er að ræða. Ekki má sækja um styrki úr báðum sjóðum samtímis til sama verkefnis. Stjórn hvors sjóðs um sig úthlutar styrkjum úr honum síðari hluta september á grundvelli þeirra umsókna sem borist hafa í tæka tíð. Næsta úthlutun styrkja úr sjóðunum fer svo fram vorið 2011. Að öðru leyti vísast til upplýsinga um sjóðina sem er að finna hér að neðan.
Tónmenntasjóður
Í Tónmenntasjóð I rennur tiltekinn hundraðshluti af flutningsréttartekjum STEFs. Þessu fé er að mestu leyti skipt á milli aðildarfélaga STEFs, Tónskáldafélags Íslands og Félags tónskálda og textahöfunda, til að standa straum af starfsemi þeirra.
Nótnasjóður
Í Tónmenntasjóð II renna tekjur sem STEF fær í sinn hlut frá FJÖLÍS, fyrst og fremst vegna fjölföldunar á nótum. Einstökum tónskáldum eru síðan veittir styrkir úr sjóðnum til útgáfu á nótum o.þ.h.
Hljóðritasjóður
Í Tónmenntasjóð III renna tekjur sem STEF fær í sinn hlut frá IHM vegna upptöku efnis á auð hljóð- og myndbönd og geisladiska. Félagar í Tónskáldafélagi Íslands geta sótt um styrki til sjóðsins til þess að gefa út efni á hljóð- og myndböndum. Félag tónskálda og textahöfunda úthlutar hins vegar fé úr sjóðnum til félagsmanna miðað við flutning á verkum þeirra í útvarpi og útgáfu á hljómplötum og öðrum hljóðritum með verkum eftir þá.
Tónskáldasjóður 365
Júní 2009
Tónskáldasjóður 365 auglýsir eftir umsóknum.
Sjóðnum er ætlað að stuðla að aukinni sköpun nýrrar íslenskrar tónlistar sem efla mætti íslenska menningu og dagskrárgerð, m.a. á miðlum 365.
Umsóknir með lýsingu á fyrirhuguðum verkefnum berist fyrir 25. júní 2009 og stílist á:
Tónskáldasjóð 365
Laufásvegi 40
101 Reykjavík
Stjórn Tónskáldasjóðs 365

