Aðild að samtökunum
Félagar í STEFi eru þrenns konar:
Þeir sem eru skráðir félagar í F.T.T., þeir sem eru skráðir félagar í T.Í. og þeir sem ekki eru skráðir í þessi tvö félög, en hafa veitt STEFi umboð sitt. Ástæðan fyrir þessu er sú, að aðeins þeir sem hafa verulegra hagsmuna að gæta sem tónskáld og textahöfundar geta orðið fullgildir félagar í aðildarfélögunum tveimur, Félagi tónskálda og textahöfunda og Tónskáldafélagi Íslands.
Þeir sem ekki eru félagar í F.T.T. eða T.Í. en hafa veitt STEFi umboð sitt velja einn mann í stjórn og tvo menn í fulltrúaráðið sem fer með æðsta vald samkvæmt Samþykktum STEFs.

