Afnot af verkum
Útvarp og sjónvarp
Samkvæmt 23. gr. höfundalaga nr. 73/1972 geta útvarpsstöðvar aflað sér heimilda til útsendingu verka með samningum við höfundaréttarsamtök. Nær hugtakið „útvarpsstöð“ í lögunum bæði yfir hljóðvarps- og sjónvarpsstöðvar. Útvarps- og sjónvarpsstöðvar, hvort sem þær eru reknar til lengri eða skemmri tíma, afla sér því leyfis til að flytja opinberlega tónverk með því að semja við STEF um greiðslur fyrir slíka notkun tónverka.
Í samningum STEFs við útvarps- og sjónvarpsstöðvar er þeim veitt svokallað „blanket licence“ sem veitir þeim rétt til að flytja hvaða tónverk, hvaða höfundar sem er, eins oft og þeir vilja gegn greiðslu til STEFs án þess að fá sérstaklega heimild viðkomandi tónhöfundar í hvert sinn. Eru samningar þessir í samræmi við samninga erlendra systursamtaka STEFs við erlendar útvarps- og sjónvarpsstöðvar.
STEF getur ekki haft nein áhrif á það hvaða tónlist er flutt eða hversu mikil tónlist er spiluð á hverri útvarps- eða sjónvarpsstöð. Ákveðnar takmarkanir gilda þó um magn tónlistarflutnings á útvarpsstöðvum sem skilgreina sig sérstaklega sem talmálsstöðvar, enda greiða þær lægra afnotagjald.
Samkvæmt samningum STEFs við sjónvarpsstöðvar hafa þær bæði heimild til þess að flytja tónlist opinberlega sem er hluti af aðkeyptu efni sem getur t.d. verið tónlist í kvikmyndum eða tónlist í sjónvarpsþáttum svo og að flytja tónlist sem er hluti af þeirra eigin dagskrárgerð. Sjónvarps- og útvarpsstöðvar hafa því heimild STEFs fyrir hönd höfunda til til að framleiða efni sjálfar sem inniheldur tónlist, þ.e. að skeyta saman mynd og tónlist, sbr. nánari umfjöllun hér að neðan.
Innifalið er í leyfi útvarps- og sjónvarpsstöðva að senda út dagskrá sína einnig á Internetinu, bæði samtímis og í tiltekinn tíma eftir útsendingu.
Eigin dagskrárgerð sjónvarpsstöðva
Samkvæmt samningi sjónvarpsstöðva við STEF er þeim heimilt að nota tónlist í einstökum þáttum í sinni eigin dagskrárgerð, þ.e.a.s. í sinni eigin framleiðslu, þó með ákveðnum undantekningum.
Undir eigin dagskrárgerð sjónvarpsstöðva sem ekki þarf sérstakt leyfi höfunda í hvert sinn fellur þannig m.a. flutningur tónlistar í fréttum og fréttatengdum þáttum, í fræðsluefni, skemmtiþáttum, tónlistarþáttum, ferðaþáttum, matreiðsluþáttum, spurningaþáttum og öðru sambærilegu efni.
Innifalið er í leyfi útvarps- og sjónvarpsstöðva að þær mega nota tónlist í sínum eigin dagskrárkynningum. Er því heimilt að kynna t.d. ákveðna þætti sem sýndir eru í sjónvarpi með tónlist.
Undir leyfi STEFs til sjónvarpsstöðva fellur hins vegar ekki framleiðsla sjónvarpsstöðva á leiknum kvikmyndum og t.d. leiknum framhaldsþáttum sem eiga meira skylt við kvikmyndir en annað efni og þar sem tónlistin gegnir stóru hlutverki í nýrri sköpun, þ.e.a.s. verður hluti af nýju sjálfstæðu verki. Fyrir slíkri framleiðslu þarf sjónvarpsstöðin leyfi hvers tónhöfundar fyrir sig til að skeyta tónlist viðkomandi við mynd, enda getur það varðað tónhöfund miklu að vera tengdur á þann hátt við tiltekið myndefni. Er það ekki á færi STEFs að leyfa slíka notkun tónlistar fyrir hönd allra tónhöfunda. Sjá nánari umfjöllun um framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsefnis hér að neðan.
Það sama á við ef tiltekið tónverk er gert að „einkennislagi“ tiltekins þáttar eins og þegar eitt tiltekið tónverk er ávallt notað í upphafi sjónvarpsþáttar. Í slíkum tilvikum getur það varðað höfundinn miklu hvort verk hans sé tengt einu tilteknu verki á svo sterkan hátt.
Ef einstakir tónhöfundar eru ósáttir við notkun á tilteknu verki sínu í útvarpi eða sjónvarpi, geta þeir leitað til STEFs sem hefur þá farið fram á það við viðkomandi aðila að hætta notkun verksins. Hafa slík mál nánast undantekningalaust verið leyst á farsælan hátt.
Í samningi STEFs við útvarps- og sjónvarpsstöðvar er einnig gert ráð fyrir því að einstakir höfundar geti lagt almennt bann við flutningi verka sinna í útvarpi og sjónvarpi. Þurfa viðkomandi höfundar þá að tilkynna slíkt til STEFs og sendir STEF þá tilkynningu til útvarps- og sjónvarpsstöðva með eins mánaðar fyrirvara áður en bannið tekur gildi.
Útvarps- og sjónvarpsstöðvar þurfa einnig leyfi frá SFH (Sambandi flytjenda og hljómplötuframleiðenda) til að flytja tónlist sem áður hefur verið gefin út á hljóðritum. Fyrir hljóðsetningu (skeyta saman hljóði og mynd) geta sjónvarpsstöðvar eða framleiðendur sjónvarpsefnis einnig þurft leyfi rétthafa þeirrar upptöku sem notuð er, þ.e.a.s. frá útgefanda og flytjanda (ef hann er annar en útgefandinn og útgefandinn fer ekki með rétt flytjanda).
Framleiðsla auglýsinga
Ávallt þarf leyfi tónhöfundar til að nota tónlist í auglýsingum. Hefur STEF ekki heimild til að veita leyfi fyrir slíkri tónlistarnotkun fyrir hönd höfunda. Ef notuð er tónlist sem áður hefur komið út þarf einnig að fá leyfi útgefanda og flytjenda fyrir notkuninni. STEF úthlutar því ekki höfundaréttartekjum vegna auglýsinga og aflar ekki upplýsinga um tónlist sem flutt er í auglýsingum (fyrir utan eigin dagskrárkynningar útvarps- og sjónvarpsstöðva).
Framleiðsla kvikmynda og sjónvarpsefnis
Þegar framleidd er hérlendis kvikmynd eða þættir (hvort sem um er að ræða leikna mynd eða þætti, heimildarmynd, auglýsingu eða hvers konar mynd sem tónlist er skeytt við til sýninga í kvikmyndahúsum, sjónvarpi eða annars staðar) og ætlunin að nota tónlist sem ekki hefur verið sérstaklega samin fyrir viðkomandi mynd, þ.e.a.s. aðra tónlist en frumsamda, þarf framleiðandi að fá samþykki viðkomandi tónhöfundar fyrir því að skeyta tónlist við myndina. Í þeim tilvikum sem framleiðsla sjónvarpsefnis fellur ekki undir samning sjónvarpsstöðva og STEFs, þá geta samtökin ekki veitt heimild fyrir hljóðsetningu f.h. tónhöfunda.
Þegar tónhöfundur hefur veitt samþykki sitt fyrir notkun tónlistarinnar annast hins vegar STEF/NCB á Íslandi innheimtu fyrir leyfið samkvæmt gjaldskrá. Fer það eftir samningi höfundar og framleiðanda hvort STEF/NCB á Íslandi innheimtir bæði fyrir fjölföldun efnisins og hljóðsetningu þess, eða eingöngu fyrir fjölföldun.
STEF/NCB á Íslandi veitir upplýsingar um hverjir séu rétthafar þeirra verka sem framleiðandi vill nota er og hvert framleiðanda beri að snúa sér til að fá leyfi höfundar fyrir hljóðsetningu.
Útgáfa sjónvarpsefnis á myndband
Ef dagskrárefni í sjónvarpi er síðar gefið út á myndband (DVD), þarf að sækja um leyfi til þess sérstaklega hjá viðkomandi tónhöfundi svo og útgefanda og flytjanda sé notuð áður útgefin tónlist. Á þetta við hvort sem framleiðsla efnisins fellur undir samning STEFs við sjónvarpsstöðvar eða ekki, enda nær leyfi STEFs til sjónvarpsstöðva ekki til útgáfu tónverka og sölu í öðru formi en flutnings í sjónvarpi.
Úthlutun greiðslna vegna útvarps- og sjónvarsflutnings
Í samningum STEFs og útvarps- og sjónvarpsstöðva er kveðið á um að þeim beri að veita STEFi upplýsingar um þá tónlist sem flutt er, hvort sem hún er innlend eða erlend. Á það jafnt við um upplýsingar um tónlist í sýndum kvikmyndum, stef sem spiluð eru s.s. fréttastef, tónlist sem leikin er undir skjáauglýsingum og tónlist í bæði aðkeyptum þáttum og eigin dagskrárgerð. Eru tónlistarskýrslur stöðvanna nú almennt sendar með rafrænum hætti til STEFs og byggist úthlutun STEFs vegna tónflutnings stöðvanna á þeim tónlistarskýrslum sem samtökunum berast. Tónverk sem birtist á tónlistarskýrslu þarf sömuleiðis að hafa verið skráð hjá STEFi til að hægt sé að úthluta fjármunum til höfundar vegna opinbers flutnings verksins. Bera höfundar sjálfir ábyrgð á því að skrá verk sín hjá STEFi. Nái greiðslur til rétthafa ekki ákveðnu lágmarki sem ákveðið er af stjórn STEFs, geymist greiðslan til næsta árs, þar til lágmarkinu er náð, í allt að fjögur ár.
Samkvæmt samkomulagi við STIM, systursamtök STEFs í Svíþjóð, sér STIM um að greiða til erlendra rétthafa vegna þeirrar erlendu tónlistar sem flutt er opinberlega á Íslandi.
Úthlutun fyrir afnot af tónlist í útvarpi og sjónvarpi tekur mið af þeim tekjum sem innheimtast frá hverri útvarps- eða sjónvarpsstöð, sbr. 3. grein Úthlutunarreglna STEFs og því getur úthlutun til höfunda verið mismunandi eftir því á hvaða útvarps- eða sjónvarpsstöð verkin eru flutt.
Til þess að hægt sé að úthluta fyrir tónlist í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, sem sýndir eru í sjónvarpi, þurfa að liggja fyrir s.k. "cue-sheet", en það er sundurliðuð greinargerð um þá tónlist sem er að finna í myndinni, titla, höfunda o.s.frv. Eru það framleiðendur efnisins sem útbúa þessi skjöl og bera ábyrgð á því að koma þeim til STEFs. Þeir höfundar sem eiga efni í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum ættu að ganga á eftir því að framleiðandi efnisins hafi gengið frá gerð „cue-sheet“ og sent til STEFs eða erlendra höfundaréttarsamtaka ef framleiðslan á sér stað erlendis.

