Rétthafar
Aðild að STEFi er ókeypis og jafnframt sú þjónusta sem starfsfólk samtakanna veitir einstökum rétthöfum. Einungis þarf að skrifa undir umboð.
Ef tónskáld eða textahöfundur notar höfundarnafn, sem er annað en hans eigið, þarf það einnig að koma fram í umboðinu.
Félagar í STEFi eru:
Þeir sem eru skráðir félagar í FTT, þeir sem eru skráðir félagar í T.Í. og þeir sem ekki eru skráðir í þessi tvö félög, en hafa veitt STEFi umboð sitt. Ástæðan fyrir þessu er sú, að aðeins þeir sem hafa verulegra hagsmuna að gæta sem tónskáld og textahöfundar geta orðið fullgildir félagar í aðildarfélögunum tveimur, Félagi tónskálda og textahöfunda og Tónskáldafélagi Íslands.
Þeir sem ekki eru félagar í F.T.T. eða T.Í. en hafa veitt STEFi umboð sitt velja einn mann í stjórn og tvo menn í fulltrúaráðið sem fer með æðsta vald samkvæmt Samþykktum STEFs.
Lögbókandagerð:
STEF vill vekja athygli rétthafa á því að verktilkynning til STEFs felur ekki sjálfkrafa í sér sönnun um að sá sem sendir inn tilkynninguna sé höfundur verksins. Í verktilkynningu kemur fram heiti verks, tegund þess o.fl. en sjaldnast er lagt fram afrit af verkinu sjálfu í formi nótna eða hljóðrits. Vilji höfundur tryggja sér slíka sönnun getur viðkomandi höfundur t.d. snúið sér til sýslumannsembættis og óskað eftir lögbókandagerð. Fer slík gerð fram gegn hóflegu gjaldi. Við lögbókandagerð bókar fulltrúi sýslumanns að viðkomandi hafi komið til embættisins og lagt fram tiltekið verk, tiltekinn dag, þá er afrit verksins sett í innsiglað og áritað umslag sem höfundinum er afhent til varðveislu.


