Nýr samstarfssamningur við Salinn
STEF vill vekja athygli á því að samtökin hafa gert nýjan samstarfssamning við Tónlistarhús Kópavogs – Salinn. Salurinn er hluti af menningarmiðstöð Kópavogs á Borgarholti og er fyrsti sérhannaði tónleikasalur landsins. Salurinn rúmar 300 manns í sæti. Lögun Salarins, hallandi gólf og þægileg sæti, skapa nálægð og góð tengsl á milli flytjenda og áheyrenda, en auk þess hefur Salurinn verið rómaður fyrir fallegt útlit og góðan aðbúnað. Tónleikahald í Salnum hefur verið afar fjölbreytt sl. ár. Mun Salurinn eftirleiðis annast innheimtu af höfundaréttargjöldum fyrir STEF af öllum tónlistarviðburðum sem fram fara í húsinu, hvort sem að viðburðirnir eru á vegum Kópavogsbæjar eða utanaðkomandi tónleikahaldara. Er þetta nokkur breyting og einföldun frá fyrri samstarfssamningi STEFs og Salarins, sem koma á öllum aðilum til góða.

