Fróðleiksmolar - fréttir

Úthlutun fyrir tónlistarflutning

Í tilefni að úthlutun STEFs á höfundaréttargreiðslum, vilja samtökin koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri.

Úthlutun STEFs fyrir tónlistarflutning á árinu 2008 byggir á  tónlistarskýrslum frá útvarpsstöðvum um spilun, auk efnisskráa frá tónleikum og frá öðrum aðilum sem tengjast opinberum flutningi tónlistar.  STEF gætir hagsmuna og úthlutar til innlendra jafnt sem erlendra höfunda/rétthafa.  Samtökin hafa gert samninga í umboði höfunda/rétthafa við allar útvarpsstöðvar á landinu og þá aðila þar sem opinber flutningur tónlistar á sér stað.  Umræddir samningar veita útvarpsstöðvunum leyfi til að flytja hvaða tónlist sem er.  Útvarpsstöðvarnar bera ábyrgð á því að senda samtökunum tónlistarskýrslur, sem leggja síðan grunn að úthlutun til rétthafa.

Samkvæmt úthlutunarreglum STEFs hafa rétthafar allt að þrjá mánuði til að senda inn athugasemdir vegna úthlutunar.  Skrifstofa STEFs fer vel yfir allar athugasemdir rétthafa og kallar eftir frekari upplýsingum frá útvarpsstöðvum eða öðrum aðilum er flytja tónlist opinberlega.

Það er ánægjulegt að geta þess að aukning hefur átt sér stað í úthlutun vegna opinbers tónlistarflutnings síðustu ár.   Sem dæmi um það má geta þess að yfir 1500 höfundar og aðrir rétthafar sem búsettir eru hér á landi fengu greiðslur fyrir tónflutning nú í desember.

Alls staðar ómar tónlist og hún vekur gleði. Til að það sé mögulegt þurfa margir aðilar að leggjast á eitt, höfundar, flytjendur, útgefendur, tónleikahaldarar, útvarpsstöðvar o.s.frv. Af öllum þessum aðilum sér STEF einungis um hagsmunagæslu fyrir höfunda laga og texta.

 F.h. STEFs,

Jenný Davíðsdóttir, skrifstofustjóri

 


Útlit síðu:



banner3
Þetta vefsvæði byggir á Eplica