Fundur með dagskrárgerðarfólki
Á dagskrá: Betri tónlistarskýrslur!
Samkvæmt samningum STEFs við hljóðvarps- og sjónvarpsstöðvar ber stöðvunum að láta samtökunum í té upplýsingar um það hvaða tónverk/lög eru flutt í hljóðvarpi og sjónvarpi svo hægt sé að inna af hendi til höfunda tilskildar höfundagreiðslur. Þær upplýsingar sem skylt er að láta STEFi í té varða jafnt innlend sem erlend tónverk/lög.
Af og til hefur verið kvartað til skrifstofu STEFs vegna þess að höfundagreiðslur fyrir flutning tónlistar í hljóðvarpi og sjónvarpi skila sér ekki til höfunda. Í flestum tilvikum hefur komið í ljós að tilskildar upplýsingar um tónlstarflutning höfðu ekki borist frá stöðvunum. Af þessu tilefni var boðað til fundar í húsakynnum STEFs hinn 11. maí 2004 og þangað boðið þeim sem bera ábyrgð á því á stöðvunum að tónlistarskýrslum sé skilað til STEFs.
Fundurinn var afar ánægjulegur og mættu á hann fulltrúar frá báðum rásum ríkisútvarps og sjónvarps, frá Stöð 2 og Bylgjunni og frá Skjá einum. Er þess vænst að skil á skýrslum muni batna til muna. Bent var á að ekki er nægilegt að geta um flytjendur heldur þurfa að fylgja heiti lags upplýsingar um hver höfundurinn er. Sömuleiðis er það útbreiddur misskilningur að ekki þurfi að veita samskonar upplýsingar um erlend lög og höfunda þeirra. Sá misskilningur var leiðréttur á fundinum og brýnt fyrir ábyrgðarfólki stöðvanna að koma þeim skilaboðum áleiðis til dagskrárgerðarfólks sem er misjafnlega vandvirkt eða vel að sér um hve brýnt er að frágangur tónlistarskýrslna sé í lagi.
Málið snýst um að mögulegt sé að koma greiðslum þeim sem innheimtar eru hjá stöðvunum til skila til þeirra sem eiga þá tónlist sem flutt er opinberlega. Höfundar eiga því beinna fjárhagslegra hagsmuna að gæta þegar kemur að tónlistarskýrslum, frágangi þeirra og skilum til STEFs.

