Fróðleiksmolar - fréttir

Höfundarétturinn og STEF

4.4.2002

Höfundarétturinn er menningarpólitískur réttur sem hefur þann megintilgang að efla listsköpun í landinu. Höfundaréttarins er gætt af höfundaréttarsamtökum þar sem einkaréttargæslu verður ekki við komið. STEF annast slíka gæslu fyrir tónskáld og textahöfunda og er í bókarkorni þessu rakin saga félagsins síðustu fimm áratugina. Titill bókarinnar, Þú skalt ekki stela, er sóttur í 7. boðorðið en til þess er oft vitnað í sambandi við höfundaréttarlegar ávirðingar, m.a. í grein sem Halldór Laxness ritaði þegar baráttan fyrir aðild Íslands að Bernarsáttmálanum stóð sem hæst.



Útlit síðu:

banner3
Þetta vefsvæði byggir á Eplica