Þú skalt ekki stela
Í tilefni af því að hinn 31. janúar 1998 voru liðin fimmtíu ár frá því að STEF var stofnað var gefin út bók þar sem rakin er saga samtakanna í hálfa öld. Sigurður Reynir Pétursson, hæstaréttarlögmaður og fyrrum framkvæmdastjóri STEFs ritaði söguna, en hann starfaði fyrir STEF í nær 45 ár.
Saga STEFs hefur ómetanlegt gildi, bæði fyrir alla þá sem vilja kynna sér sögu tónskálda, textahöfunda og annarra rétthafa á sviði tónlistar, svo og fyrir þá sem hafa áhuga á þróun íslensks höfundaréttar.
Bókin ber heitið Þú skalt ekki stela - Störf og barátta STEFs í fimm áratugi til verndar og styrktar höfundarétti.
Bókin fæst á skrifstofu STEFs og kostar kr. 1500,-

