Fróðleiksmolar - fréttir

Fréttatilkynning vegna lokun aðgengis að vefsvæðum deildu og piratebay

2.10.2013

Fréttatilkynning 2. október 2013

Lokun aðgengis að vefsvæðunum deildu og piratebay með lögbanni

 

Undirrituð rétthafasamtök hafa farið fram á það við Sýslumanninn í Reykjavík að lögbann verði lagt  á aðgengi viðskiptavina stærstu netþjónustufyrirtækja landsins að vefsvæðunum deildu.net og thepiratebay.sx ásamt lénum sem vísa á sömu svæði.

Þessar aðgerðir eru neyðarúrræði rétthafa þar sem allar aðrar leiðir hafa nú verið fullreyndar án viðhlítandi árangurs, þ.á.m. kærur til lögreglu og samningaleiðir. Þá stóðu undirrituð rétthafasamtök einnig að vitundarvakningarátaki meðal almennings undir kjörorðunum „Metum listina að verðleikum – njótum hennar löglega“.

Lokun á aðgengi vefsvæða sem að meginstefnu og í stórfelldum mæli miðla efni án heimilda rétthafa, er leið sem farin hefur verið í mörgum nágrannalöndum okkar með góðum árangri og byggist á skýrum heimildum í tilskipun Evrópusambandsins. Með þessum aðgerðum er ekki skertur réttur einstaklinga til tjáningarfrelsis enda er með aðgerðunum verið að koma í veg fyrir lögbrot og vernda eignarrétt og fjárhagsafkomu höfunda, flytjenda og framleiðenda.

Talsmaður deildu.net lýsti því yfir nýverið að hlaða mætti upp íslensku efni á síðunni og í kjölfarið var íslensku kvikmyndinni Djúpið hlaðið niður meira en 10.000 sinnum. Ljóst er af því dæmi hversu mikið tjón eigendur efnis sem finna má á ofangreindum vefsvæðum hafa mátt þola, en þeir hafa ekki fengið neitt greitt fyrir notkun á því efni sem dreift er á síðunum í óþökk þeirra. Þetta umhverfi gerir löglegum efnisveitum einnig örðugt að starfa hér á landi. Að auki fer íslenska ríkið varhluta af umtalsverðum tekjum vegna þessa. Þess má einnig geta í þessu sambandi að eigendur Piratebay hafa allir verið dæmdir í Svíþjóð í fangelsi fyrir stórfelld brot á höfundarétti er tengist vefsíðunni. Mannréttindadómstóll Evrópu staðesti að hinn sænski dómur fæli ekki í sér ólögmæta skerðingu á tjáningarfrelsi.

Fjárhagslegt tjón rétthafa höfunda, flytjenda og framleiðanda er nú þegar gífurlegt af völdum ólögmætrar starfsemi af þessu tagi og við óbreytt ástand og lagaumhverfi eiga rétthafar ekki annarra kosta völ en að verja lögmæta hagsmuni sína með lögbannsaðgerðum. Verður slíkum aðgerðum áfram haldið svo lengi sem þörf krefur. 

Að lögbannsbeiðninni standa eftirfarandi rétthafasamtök: SÍK – Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda, STEF - Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar, FHF - Félag hljómplötuframleiðenda og SMÁÍS - Samtök myndrétthafa á Íslandi,

Hér má nálgast skjal með spurningum og svörum er varðar þessa aðgerð.

 

Nánari upplýsingar veitir Tómas Jónsson hrl. Lögfræðiskrifstofu Reykjavíkur. tomas@lr.is  sími: 515 7400 / 894 7410


Útlit síðu:



banner3