Fróðleiksmolar - fréttir
Heiðursmerki STEFs veitt Valgeiri Guðjónssyni
Söngvaskáldið Valgeir Guðjónsson var sæmdur heiðursmerki STEFs , Gullna hananum, á afmælistónleikum sínum í Hörpu 22. janúar 2012, en merkið hafa áður hlotið ýmsir þeir er stuðlað hafa að aukningu höfundarréttargjalda, þ.á.m. söngvararnir Haukur Morthens, Björgvin Halldórsson og Pavarotti.
Valgeir var formaður FTT og STEFs við upphaf níunda áratugarins og hefur verið í hópi afkastamestu höfunda landsins um árabil auk þess að vera í fremstu röð flytjenda.
Það var Kjartan Ólafsson formaður STEFs sem nældi Gullna hananum í Valgeir fyrir troðfullum sal af tónleikagestum í Hörpunni.

